Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Stórleikir í München og Leipzig
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru afar spennandi leikir sem fara fram í þýska boltanum í dag og hefst veislan í München þar sem topplið FC Bayern mætir til leiks.

Bayern, sem er með sex stiga forystu á toppinum, fær Eintracht Frankfurt í heimsókn sem er í harðri baráttu um evrópusæti.

Þar má búast við spennandi slag sérstaklega í ljósi þess að lærlingar Vincent Kompany hafa misstigið sig í tveimur af síðustu fjórum deildarleikjum.

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í liði Köln taka á móti sterku liði Hoffenheim sem er í góðri stöðu í meistaradeildarsæti á meðan Union Berlin tekur á móti Bayer Leverkusen, sem er í meistaradeildarbaráttunni.

RB Leipzig og Borussia Dortmund eigast við í lokaleik dagsins sem er jafnframt stórleikur helgarinnar. Leipzig situr í fimmta sæti, ellefu stigum á eftir Dortmund í öðru sætinu.

GERMANY: Bundesliga
14:30 Wolfsburg - Augsburg
14:30 Union Berlin - Leverkusen
14:30 Bayern - Frankfurt
14:30 Köln - Hoffenheim
17:30 RB Leipzig - Dortmund
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 25 6 6 13 23 40 -17 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner