Hjörvar Daði og Eiður Atli voru liðsfélagar hjá HK og Hjörvar benti þáverandi þjálfara, Hermanni Hreiðarssyni, á Eið Atla.
Eiður Atli Rúnarsson gekk í nóvember í raðir ÍBV frá uppeldisfélaginu sínu, en ÍBV keypti hann frá HK. Eiður Atli þekkir vel til hjá ÍBV en hann hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina sumarið 2024.
Fótbolti.net ræddi við kappann um félagaskiptin.
Fótbolti.net ræddi við kappann um félagaskiptin.
„Ég er mjög ánægður, glaður og spenntur að vera orðinn aftur leikmaður ÍBV," segir Eiður Atli sem er ánægður með fyrstu mánuðina í Eyjum.
„Það sem heillaði mig við ÍBV er margt, félagið er með mjög góða aðstöðu og það heillar að geta æft við alveg topp toppaðstæður. Það heillar að búa í Eyjum, fólkið sem er í kringum klúbbinn er toppfólk."
ÍBV vildi fá Eið Atla fyrir tímabilið 2025, Eyjamenn lögðu fram tilboð en HK hafnaði.
Eiður Atli var spenntur fyrir því að vinna með Þorláki Árnasyni og hafði áhuginn sem Láki hafði á Eiði áhrif á ákvörðun hans að ganga í raðir Eyjamanna í vetur. Keflvíkingar höfðu líka áhuga á Eiði Atla. „Þeir höfðu áhuga en mér fannst alltaf rétta skrefið að fara í ÍBV."
Vissi að sér myndi líða vel á eyjunni
Var högg að Láki sagði svo upp snemma í desember?
„Það var svolítið skrítið fyrst, en svona er bara fótbolti, það er alltaf eitthvað óvænt í þessu sporti. En nei nei, ég myndi ekkert segja högg þar sem það var ekkert bara hann sem sýndi áhuga, það voru líka Maggi Sig og þeir sem stjórna á skrifstofunni sem gerðu mikið til að fá mig og ég vissi að mér myndi líða vel á eyjunni."
Hvernig upplifðir þú tímann hjá ÍBV þegar óvissa var um hver yrði þjálfari?
„Ég var að æfa í bænum með Víkingum og var því ekki mikið í Eyjum að æfa þar. En það sem maður heyrði var bara að menn ætluðu ekki að láta þetta stoppa okkur."
Linta komið mikið á óvart
Serbinn Aleksandar Linta var svo ráðinn þjálfari ÍBV 12. janúar. Hvernig líst þér á þjálfarann?
„Linta er búinn að koma mikið á óvart. Ég ætla ekki að ljúga að ég hafi vitað mikið um hann þegar hann kom, en hann er með góðar hugmyndir og veit alveg hvernig hann vill spila sinn bolta. Hann er búinn að vera drilla okkur mjög vel í vetur."
Geggjaðar minningar frá tímanum í HK
Var erfitt að fara frá uppeldisfélaginu?
„Það var mjög erfið ákvörðun að fara frá HK, það er uppeldisfélagið mitt, ég á geggjaðar minningar frá þessum 18 árum og ég hef eignast marga góða vini."
Týpískt íslenskt dæmi
Hvernig endaði Eiður í Eyjum tímabilið 2024 og hvernig var það tímabil?
„Það var geggjað, það hvernig ég endaði í Eyjum var bara týpískt íslenskt dæmi held ég, ég vildi spila reglulega, fá að byrja leiki, og Hjörvar (Daði Arnarsson) vinur minn segir að ÍBV vanti alltaf leikmenn. Hann segir Hemma (Hermanni Hreiðarssyni) frá því að ég sé áhugasamur og í kjölfarið fór boltinn að rúlla. Ég átti smá spjall við Hemma, tók svo bara sénsinn og sé alls ekki eftir því."
Skrautlegur leikur á Spáni
Hvernig var æfingaferðin?
„Æfingaferðin gekk mjög vel, tókum tvo leiki einn gegn AaB sem eftir því sem ég best veit var bara með alla sína leikmenn inn á, ekkert varalið eða eitthvað svoleiðis, og við vinnum þá."
„Svo var það leikur gegn spænska liðinu CD Minera og Spánverjarnir voru eins og þeir voru. Það eftirminnilegasta úr leiknum var þegar Robbi (Róbert Elís Hlynsson) fékk einn 'old school' olnboga í sig og þurfti að vera út af í góðar fimm mínútur. Hann kom síðan inn á völlinn á sprettinum og keyrir í bakið á aldursforsetanum þeirra og þá setti Robbi bensín á bálið og því fór sem fór - leikurinn flautaður af fyrir hálfleik. En 1-0 sigur, við tökum því."
Jólasveinar og vöntun á hreðjum
ÍBV spilaði ekki tvo leiki í Lengjubikarnum þar sem þeim var frestað.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið heilt yfir? Líður þér eins og þið séuð klárir fyrir mót?
„Undirbúningstímabilið er búð að vera smá skrýtið sérstaklega fyrir mig, ég er vanur að spila bara allar helgar frá október og fram að tímabili, en veðrið og einhverjir jólasveinar sem eiga sjá um að dýpka Landeyjarhöfn eru greinilega mikið í kaffi og sígó þannig erfitt fyrir okkur og önnur lið að spila eins mikið og við myndum kannski vilja. Við höfum tekið nokkra leiki eftir að hafa siglt í Þorlákshöfn og við sýndum ekki okkar bestu frammistöðu í þeim leikjum, viðurkenni það. Ég er á því að lið hafi ekki hreðjarnar í að taka siglinguna frá Þorlákshöfn og spila við okkur hérna í Eyjum, en við vælum ekkert yfir því, það er bara eins og það er."
„Mér líður eins og við séum í mjög góðu standi og Elli styrkur (Elías Árni Jónsson, styrktarþjálfari) sér til að við mætum tilbúnir í þetta tímabil."
Stefnir á topp sex
Eru einhver markmið fyrir 2026?
„Ég vil byrja á því að ná topp sex í deildinni, ef það næst er stutt í Evrópusætið sem allir vilja. Mér finnst við vera með alvöru gæðaleikmenn í liðinu eins og sást síðasta sumar."
Spilar þar sem þjálfarinn vill að hann spili
Eiður Atli hefur bæði spilað sem miðvörður og á miðjunni.
„Ég tel mína besta stöðu vera hafsentinn, mér fannst ég eiga mitt besta tímabil og bestu leiki í þeirri stöðu. En ég spila bara þar sem þjálfarinn setur mig og hef alveg gaman af öðrum stöðum líka," segir Eiður.
Duglegur að sekta liðsfélagana
Í hinni hliðinni sagði Liam Daði Jeffs frá því að Eiður Atli gæti talað endalaust um sektarbókina sína. Ertu sektarstjóri liðsins?
„Já já, maður er víst sektarstjórinn ásamt Felix, en hann er búinn að vera svolítið latur að undanförnu og vinnan hefur því sest svolítið á mig. Maður passar að allir séu að haga sér, annars er ég fljótur að taka upp bókina. Arnór Ingi, hann hefur fengið flestar sektirnar þessa mánuðina, alltaf að fikta í þessu blessaða hári sínu og mætir of seint í gymmið."
Hver er svona uppáhaldssektin í bókinni?
„Það er fyrir að tuða í sektarstjóra, ansi margir farið í bókina frægu fyrir það," segir Eiður Atli að lokum.
Athugasemdir



