City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   sun 22. febrúar 2026 13:56
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Sheffield United felldi erkifjendur sína í sögulegum leik
Fyrsta liðið til að falla í febrúar
Kalvin Phillips sá rautt en það spillti ekki gleðinni hjá Sheffield United sem sendi Wednesday niður um deild
Kalvin Phillips sá rautt en það spillti ekki gleðinni hjá Sheffield United sem sendi Wednesday niður um deild
Mynd: Sheffield United
Sheffield Wednesday mun spila í C-deildinni á næsta tímabili
Sheffield Wednesday mun spila í C-deildinni á næsta tímabili
Mynd: EPA
Sheffield Utd 2 - 1 Sheffield Wed
1-0 Patrick Bamford ('2 )
2-0 Harrison Burrows ('19 )
2-1 Charlie McNeill ('52 )
Rautt spjald: ,Kalvin Phillips, Sheffield Utd ('49)Gabriel Otegbayo, Sheffield Wed ('90)

Sheffield Wednesday er fallið niður í C-deildina eftir að hafa tapað fyrir erkifjendum sínum í Sheffield United, 2-1, á Bramall Lane í Sheffield í dag.

Það var vitað fyrir leikinn að tap myndi senda Wednesday niður um deild, en átján stig voru dregin af liðinu eftir að félagið var sett í greiðslustöðvun á síðasta ári.

Eitt er að falla niður um deild en það gerir það verra þegar erkifjendur þínir fá tækifærið til að gera það og ætlaði United ekki að missa af því tækifæri.

Patrick Bamford skoraði snemma leiks eftir hræðilega hreinsun Joel Ndala. Wednesday-maðurinn kom sér í klípu og reyndi að komast undan pressu United, en hreinsun hans fór beint á Gustavo Hamer sem var fyrir utan teiginn, lagði boltann inn á Bamford sem gerði áttunda mark sitt síðan hann samdi við United.

Harrison Burrows bætti við forystuna á 19. mínútu. Bakvörðurinn hóf sóknina, boltanum komið á Sydie Peck sem átti þessa konfektsendingu aftur inn á Burrows sem skoraði með þrumufleyg í vinstra hornið.

Staðan í hálfleik 2-0 og ekkert sem benti til þess að Wednesday myndi koma til baka.

Þeir fengu smá vonarneista þegar Kalvin Phillips sá rauða spjaldið fyrir að fylgja á eftir ljótri tæklingu á Svante Ingelsson og þremur mínútum síðar minnkaði Charlie McNeill muninn með frábæru skoti úr teignum.

United náði fljótlega aftur stjórn á leiknum og hélt í forystuna. Á síðustu mínútunum sá Gabriel Otegbayo, leikmaður Wednesday, sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Sjö mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en Wednesday tókst ekki að bjarga andliti og er því fallið niður um deild. Ansi grimmt gegn nágrönnunum sem munu aldrei gleyma þessum sögulega leik.

Wednesday setti það óeftirsóknarverða met að verða fyrsta liðið í sögu EFL-deildarinnar til að falla í febrúar.

Meira að segja án stigafrádráttarins væri Wednesday í fallsæti, en liðið hefur ekki unnið leik síðan gegn Portsmouth í sjöttu umferð deildarinnar í september.

Þetta var fjórði sigur Sheffield United í síðustu sex leikjum en liðið er í 14. sæti með 45 stig, tólf stigum fyrir ofan fallsæti.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 38 23 8 7 78 40 +38 77
2 Middlesbrough 38 20 10 8 59 37 +22 70
3 Ipswich Town 37 19 11 7 66 38 +28 68
4 Millwall 38 20 8 10 52 43 +9 68
5 Hull City 38 19 6 13 59 56 +3 63
6 Wrexham 37 16 12 9 57 47 +10 60
7 Southampton 37 15 12 10 60 48 +12 57
8 Derby County 37 15 9 13 54 48 +6 54
9 Birmingham 38 14 11 13 48 48 0 53
10 Watford 37 13 13 11 47 45 +2 52
11 Swansea 38 15 7 16 44 46 -2 52
12 Norwich 37 15 6 16 51 45 +6 51
13 Stoke City 38 14 9 15 45 40 +5 51
14 Bristol City 38 14 9 15 49 49 0 51
15 Sheffield Utd 38 15 5 18 53 52 +1 50
16 QPR 38 14 8 16 49 60 -11 50
17 Preston NE 38 12 13 13 42 48 -6 49
18 Charlton Athletic 38 12 12 14 36 45 -9 48
19 Blackburn 38 11 9 18 36 49 -13 42
20 Portsmouth 36 10 10 16 36 47 -11 40
21 West Brom 38 10 10 18 39 54 -15 40
22 Oxford United 38 9 12 17 36 49 -13 39
23 Leicester 38 11 11 16 51 60 -9 38
24 Sheff Wed 38 1 9 28 23 76 -53 -6
Athugasemdir
banner
banner