Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ein af bestu leikmönnum Inter sem vann öruggan 3-0 sigur á Sassuolo í Seríu A á Ítalíu í dag.
Cecilía, sem kom til Inter frá Bayern München á síðasta ári, og var besti markvörður ítölsku deildarinnar á fyrstu leiktíð sinni.
Hún tók upp þráðinn frá því sem var horfið og hélt hreinu í sjöunda leiknum gegn Sassuolo.
FotMob og Flashscore völdu hana sem annan besta leikmann Inter í kvöld. Hún fær 7,7 á Flashscore og 7,9 á FotMob.
Hún átti þrjár vörslur í leiknum, þar af tvær eftir skot úr teignum.
Telma Ívarsdóttir var á bekknum hjá Inter en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki með.
Inter er í öðru sæti deildarinnar með 33 stig, fjórum stigum frá toppliði Roma eftir sextán umferðir.
Athugasemdir


