City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 16:45
Elvar Geir Magnússon
Pabbi ungstirnisins reiður út í mann sem treður sér í sviðsljósið
Max Dowman.
Max Dowman.
Mynd: EPA
Temisan Williams í viðtalinu á TalkSport.
Temisan Williams í viðtalinu á TalkSport.
Mynd: TalkSport
Hinn 16 ára gamli Max Dowman hirti fyrirsagnirnar þegar hann skoraði seinna mark Arsenal í 2-0 sigri gegn Everton um helgina. Hann varð þar með yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.

Faðir þessa efnilega leikmanns, Robert Dowman, hefur látið í sér heyra eftir að fótboltaþjálfari sem heitir Temisan Williams tróð sér í sviðsljósið og hefur verið að veita viðtöl. Williams segist hafa átt þátt í vegferð ungstirnisins en Robert segir það af og frá.

Williams mætti meðal annars í viðtal hjá TalkSport, við litla hrifningu Dowman fjölskyldunnar.

„Að hlusta á þennan náunga halda því fram að hann hafi verið hluti af vegferð Max er mjög sorgleg tilraun til að upphefja sjálfan sig," skrifaði Robert Dowman á X.

„Ég hef áður beðið hann um að halda sig frá því en hann birtist svo á TalkSport í morgun... ég man eftir því að hann setti út keilurnar á æfingum nokkrum sinnum en þá er það upptalið. Við höfum haft svo marga frábæra þjálfara sem við erum þakklát en hann er klárlega ekki einn af þeim."

Fjölmiðlamaðurinn Adonis Pratsides svaraði innlegginu og spurði Robert hvort hann væri tilbúinn að veita viðtal um málið. Robert afþakkaði það en ráðlagði fjölmiðlum að forðast það að ræða við Williams þar sem hann væri svikahrappur.

Umrætt viðtal má sjá hér að neðan. Williams fer fögrum orðum um Dowman og fjölskyldu hans en þrátt fyrir það er ekki mikil ánægja með að hann sé að veita viðtöl um drenginn.



Athugasemdir
banner
banner