City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Bournemouth og Brentford eiga fulltrúa í brasilíska landsliðinu - Enginn Neymar
Igor Thiago er í hópnum
Igor Thiago er í hópnum
Mynd: EPA
Rayan fær tækifærið hjá Ancelotti
Rayan fær tækifærið hjá Ancelotti
Mynd: Bournemouth
Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, hefur valið leikmannahópinn fyrir leikina gegn Frakklandi og Króatíu í lok mánaðarins, en þar má finna fulltrúa frá bæði Bournemouth og Brentford.

Igor Thiago, einn heitasti framherji ensku úrvalsdeildinnar, er í hópnum.

Hann hefur skorað 18 deildarmörk með Brentford á tímabilinu og hefur nú verið kallaður inn í brasilíska hópinn í fyrsta sinn og sama á við um Rayan, leikmann Bournemouth.

Neymar, markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, fær ekki kallið í þessum glugga og mun því þurfa að nýta næstu tvo mánuði í að koma sér í betra form til að eiga möguleika á að vera í lokahópnum fyrir HM.

Hann er í dag á mála hjá Santos og hjálpaði liðinu að bjarga sér frá falli undir lok síðasta árs. Hann hefur komið að fjórum mörkum í fyrstu fjórum leikjum í byrjun leiktíðar.

Einn fulltrúi kemur frá Real Madrid en það er Vinicius Jr og þá eru nokkir úr sádi-arabísku deildinni.

Hópurinn: Alisson (Liverpool), Bento (Al-Nassr), Ederson (Fenerbahce), Alex Sandro (Flamengo), Bremer (Juventus), Danilo (Flamengo), Gabriel (Arsenal), Roger Ibanez (Al-Ahli), Leo Pereira (Flamengo), Marquinhos (PSG), Wesley (Roma), Andrey Santos (Chelsea), Casemiro (Man Utd), Danilo (Botafogo), Fabinho (Al-Ittihad), Gabriel Sara (Galatasaray), Endrick (Lyon), Gabriel Martinelli (Arsenal), Igor Thiago (Brentford), Luiz Henrique (Zenit), Matheus Cunha (Man Utd), Joao Pedro (Chelsea), Raphinha (Barcelona), Rayan (Bournemouth), Vinicius Jr (Real Madrid).


Athugasemdir
banner