Það fóru nokkrir æfingaleikir fram í Bandaríkjunum í nótt þar sem Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði CF Montréal.
Montréal spilaði við San Diego FC og steinlá. Norski framherjinn Amahl Pellegrino, sem náði ótrúlegum árangri með Bodö/Glimt árin 2022 og 2023, skoraði eitt mark og átti Daninn Marcus Ingvartsen mark og stoðsendingu.
Lokatölur urðu 5-0 fyrir San Diego en Montréal lék seinni hálfleikinn manni færri eftir að Tomás Avilés fékk að líta beint rautt spjald á 50. mínútu.
Lionel Messi lék þá allan leikinn í 3-0 tapi Inter Miami gegn Los Angeles FC. Rodrigo De Paul var einnig í byrjunarliðinu en þeim félögunum tókst ekki að stöðva sterkt lið Los Angeles. Luis Suárez byrjaði á bekknum en var skipt inn og fékk að spreyta sig á lokamínútunum.
Son Heung-min leiddi sóknarlínu LAFC og gaf stoðsendingu í verðskulduðum sigri.
Í kvennaboltanum tapaði Angel City naumlega gegn Seattle Reign, en Sveindís Jane Jónsdóttir var ekki í byrjunarliðinu.
San Diego 5 - 0 Montreal
Los Angeles 3 - 0 Inter Miami
Angel City 0 - 1 Seattle Reign
Athugasemdir



