Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Sangaré maður leiksins í Nottingham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Það kemur ekki á óvart að Viktor Gyökeres og Eberechi Eze voru einkunnahæstir í sannfærandi sigri Arsenal á útivelli gegn Tottenham þar sem þeir skoruðu sitthvora tvennuna, en Gyökeres er valinn sem besti leikmaður vallarins.

Miðvörðurinn Radu Dragusin var versti leikmaður vallarins ásamt liðsfélögum sínum Conor Gallagher og Xavi Simons sem fengu 5 í einkunn.

Englandsmeistarar Liverpool unnu naumlega gegn Nottingham Forest fyrr í dag og var Ibrahim Sangaré valinn maður leiksins þrátt fyrir að vera í tapliðinu.

Sangaré fær 8 í einkunn fyrir sína frammistöðu en bestu leikmenn í sigurliði Liverpool fá aðeins 7 fyrir sinn þátt, þar á meðal markaskorarinn Alexis Mac Allister.

Forest sýndi flotta frammistöðu og fóru heimamenn illa með góð færi og góðar stöður til að skora ekki í afar naumum tapleik.

Crystal Palace vann þá naumlega á heimavelli gegn botnliði Wolves þar sem Dean Henderson var maður leiksins eftir að hafa varið vítaspyrnu. Ladislav Krejci, sem lét reka sig af velli með tvö gul spjöld sem hann fékk með stuttu millibili, var skúrkurinn í liði Úlfanna með 4 í einkunn.

Að lokum var Raúl Jiménez besti maður vallarins þegar hann skoraði tvennu í sigri Fulham í Sunderland. Hollenski framherjinn Brian Brobbey var verstur í liði heimamanna með 4 í einkunn, alveg eins og Emile Smith Rowe sem var fjarkaður í sigurliði Fulham.

Tottenham: Vicario (6); Gray (6), Dragusin (5), Van de Ven (7), Spence (6); Palhinha (6), Gallagher (5), Bissouma (6); Sarr (6), Kolo Muani (7), Simons (5)
Varamenn: Tel (6), Richarlison (7), Solanke (6)

Arsenal: Raya (8); Timber (6), Saliba (7), Gabriel (7), Hincapie (8); Zubimendi (7), Rice (7), Eze (9); Saka (7), Gyokeres (9), Trossard (7)
Varamenn: Martinelli (7), Mosquera (7), Odegaard (7), Madueke (7)



Forest: Ortega (6), Aina (7), Murillo (7), Milenkovic (7), Williams (7), Sangare (8), Anderson (7), Gibbs-White (7), Hudson-Odoi (6), Igor Jesus (6), Hutchinson (6).
Varamenn: Ndoye (6), Bakwa (5), Dominguez (6), Lucca (6)

Liverpool: Alisson (7), Szoboszlai (7), Konate (6), Van Dijk (6), Kerkez (6), Mac Allister (7), Gravenberch (6), Jones (5), Salah (5), Ekitike (6), Gakpo (5).
Varamenn: Ngumoha (7), Chiesa (6),



Crystal Palace: Henderson (8), Munoz (6), Riad (6), Richards (7), Canvot (6), Mitchell (7), Hughes (6), Wharton (5), Pino (5), Sarr (6), Strand Larsen (6)
Varamenn: Kamada (6), Guessand (7), Johnson (6)

Wolves: Sa (6), Tchatchoua (6), Mosquera (6), Santiago Bueno (6), Krejci (4), Hugo Bueno (7), Andre (7), Bellegarde (7), Mane (7), Arokodare (5), Armstrong (6).
Varamenn: Wolfe (6), Joao Gomes (6)



Sunderland: Roefs (5), Mukiele (5), Ballard (6), Alderete (6), Hume (7), Sadiki (7), Jocelin (5), Diarra (5), Le Fee (6), Angulo (5), Brobbey (4).
Varamenn: Geertruida (6), Mundle (4), Isidor (5), Mayenda (5), Xhaka (6).

Fulham: Leno (6), Sessegnon (6), Bassey (6), Andersen (6), Tete (6), Berge (6), Iwobi (7), Kevin (5), Smith Rowe (4), Wilson (7), Jimenez (8).
Varamenn: Bobb (6), Muniz (6)
Athugasemdir
banner
banner