Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 18:39
Ívan Guðjón Baldursson
England: Arsenal sannfærandi í grannaslagnum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham 1 - 4 Arsenal
0-1 Eberechi Eze ('32 )
1-1 Randal Kolo Muani ('34 )
1-2 Viktor Gyokeres ('47 )
1-3 Eberechi Eze ('61 )
1-4 Viktor Gyökeres ('94)

Arsenal heimsótti nágranna sína á Tottenham Hotspur leikvanginum í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og skóp sannfærandi sigur eftir að hafa misstigið sig í síðustu leikjum.

Arsenal gerði óvænt jafntefli við Brentford og Wolves í síðustu tveimur umferðum og voru lærlingar Mikel Arteta staðráðnir í að snúa aftur á sigurbraut í dag.

Arsenal var sterkara liðið en leikmenn Tottenham sýndu einnig flottar rispur í sínum fyrsta leik undir stjórn Igor Tudor. Það var þó Eberechi Eze sem náði forystunni á 32. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir Arsenal síðan hann skoraði þrennu í sigri gegn Tottenham í lok nóvember.

Eze skoraði laglegt mark eftir fyrirgjöf frá Bukayo Saka, þar sem Eze náði að taka einhvern veginn á móti boltanum áður en hann kláraði með hálfgerðu karatesparki til að setja hann í netið.

Randal Kolo Muani svaraði þó fyrir Tottenham skömmu síðar. Hann vann boltann eftir herfilega tilraun hjá Declan Rice til að rekja boltann úr erfiðri stöðu í vörninni og gerði vel að klára með marki. Rice, sem átti að öðru leyti frábæran leik, var augljóslega pirraður út í sjálfan sig eftir mistökin.

Gestunum tókst ekki að ná forystunni á nýjan leik þrátt fyrir að komast í fínar stöður svo staðan var jöfn í leikhlé, 1-1.

Viktor Gyökeres byrjaði seinni hálfleikinn á því að skora frábært mark. Hann fékk pláss rétt fyrir utan vítateigslínuna og lét vaða með bylmingsföstu skoti sem Guglielmo Vicario náði ekki til.

Arsenal var áfram sterkari aðilinn og tvöfaldaði Eze forystuna með sínu öðru marki á 61. mínútu. Í þetta skiptið skoraði hann eftir að hafa sjálfur unnið boltann hátt uppi á vellinum og fylgdi svo eftir marktilraun/sendingu frá Saka með marki af stuttu færi.

Tottenham fékk einhver færi til að minnka muninn en David Raya bjargaði þegar hans var þarfnast og virtist sigur Arsenal ekki í raunverulegri hættu á lokakaflanum.

Í uppbótartímanum gulltryggði Gyökeres sigurinn með marki eftir sendingu frá fyrirliðanum Martin Ödegaard sem byrjaði leikinn á bekknum. Gyökeres er þar með búinn að skora 8 mörk í síðustu 12 leikjum fyrir Arsenal í öllum keppnum.

Arsenal fer aftur upp í fimm stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar með þessum sigri, en Manchester City er með leik til góða í öðru sætinu.

Tottenham er aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir þrjá tapleiki í röð.
Athugasemdir
banner