City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   sun 22. febrúar 2026 13:25
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Sterkur heimasigur hjá Mikael
Mikael Egill og félagar eru í ágætis stöðu eftir sigur dagsins
Mikael Egill og félagar eru í ágætis stöðu eftir sigur dagsins
Mynd: EPA
Genoa 3 - 0 Torino
1-0 Brooke Norton-Cuffy ('21 )
2-0 Caleb Ekuban ('40 )
3-0 Junior Messias ('83 )
Rautt spjald: Emirhan Ilkhan, Torino ('45)

Mikael Egill Ellertsson og hans menn í Genoa komu sér upp um eitt deildarsæti er liðið vann 3-0 sigur á Torino í Seríu A á Ítalíu í dag.

Tímabilið hefur verið erfitt hjá Genoa sem hefur verið að berjast í neðri hluta deildarinnar.

Brooke Norton-Cuffy, Caleb Ekuban og Junior Messias sáu til þess að koma liðinu sex stigum fyrir ofan fallsæti með góðum mörkum. Fyrstu tvö mörkin komu eftir frákast.

Markvörður Torino varði skot í átt að Norton-Cuffy sem afgreiddi boltann í netið á 21. mínútu og uppskriftin var svipuð að öðru markinu en þá var boltinn varinn út á Ekuban sem skoraði af stuttu færi.

Emirhan Ilkhan, leikmaður Torino, sá rautt undir lok hálfleiksins fyrir groddalega tæklingu á Lorenzo Colombo og léku Torino-menn því manni færri allan síðari hálfleikinn.

Tíu menn Torino fengu ágætis færi til að koma sér aftur inn í leikinn í þeim síðari en Duvan Zapata og Gvidas Gineitis fóru báðir illa með færin.

Gestirnir færðu Genoa þriðja markið á silfurfati er varnarmaðurinn tók á móti boltanum og rann til. Junior Messias nýtti sér mistökin, keyrði fram völlinn og rak um leið síðasta naglann í kistu Torino.

Genoa vann sannfærandi 3-0 sigur og er komið í 14. sæti með 27 stig, sex stigum fyrir ofan fallsæti, en Torino í 15. sæti með jafnmörg stig en lakari markatölu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner
banner