Það fóru fjórir leikir fram í C-deild Lengjubikars karla í dag og í kvöld þar sem Stokkseyri vann stærsta sigurinn, 5-1 gegn KM.
Stokkseyringar náðu forystunni snemma leiks og var martin Luke Forward, markvörður KM, rekinn af velli skömmu síðar. KM var ekki með neinn varamarkvörð svo útispilandi leikmaður fékk lánaða markmannshanska og henti sér á milli stanganna.
Næsta mark kom ekki fyrr en í seinni hálfleik þegar Sunnlendingar tvöfölduðu forystuna á Selfossi, en Anderson González sem kom inná í hálfleik minnkaði muninn skömmu síðar.
Hafþór Berg Ríkarðsson innsiglaði sigur Stokkseyrar með tvennu á stuttum kafla áður en Gunnar Flosi Grétarsson skoraði fimmta markið svo lokatölur urðu 5-1.
Það hitnaði í kolunum á lokakaflanum og fékk markaskorarinn Anderson að líta rauða spjaldið á 80. mínútu áður en Sigurður Ingi Björnsson var rekinn í sturtu í liði Stokkseyrar í uppbótartímanum.
Skallagrímur tapaði þá gegn Skautafélagi Reykjavíkur í Akraneshöllinni. Markús Pálmi Pálmason og Helgi Rafn Bergþórsson skoruðu mörkin í sigri SR sem er með sex stig eftir tvær umferðir.
Markús Þórðarson var atkvæðamestur með tvennu í sigri Kríu á Skallagrími og setti Kristján Jóhannesson tvennu í þægilegum sigri Léttis.
Stokkseyri 5 - 1 KM
1-0 Elfar Ísak Halldórsson ('10)
2-0 Marteinn Maríus Marinósson ('56)
2-1 Anderson Jesús Montañez González ('60)
3-1 Hafþór Berg Ríkarðsson ('66)
4-1 Hafþór Berg Ríkarðsson ('69)
5-1 Gunnar Flosi Grétarsson ('76)
Rautt spjald: Martin Luke Forward, KM ('12)
Rautt spjald: Anderson González, KM ('80)
Rautt spjald: Sigurður Ingi Björnsson, Stokkseyri ('93)
Skallagrímur 1 - 2 SR
0-1 Markús Pálmi Pálmason ('13)
1-1 Alejandro Serralvo Gomez ('34)
1-2 Helgi Rafn Bergþórsson ('59)
Rautt spjald: Hreimur Óskar Karlsson, Skallagrímur ('95)
Uppsveitir 2 - 3 Kría
1-0 Jose David Martinez Torralba ('3)
1-1 Markús Þórðarson ('16)
1-2 Tómas Helgi Snorrason ('67)
1-3 Markús Þórðarson ('71)
2-3 Tómas Ingi Ármann ('75)
Léttir 3 - 0 RB
1-0 Kristján Jóhannesson ('21)
2-0 Baltasar M. Wedholm Gunnarsson ('42)
3-0 Kristján Jóhannesson ('54)
Athugasemdir


