City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   sun 22. febrúar 2026 16:48
Brynjar Ingi Erluson
Slot: Jafntefli hefði verið sanngjarnt
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Rio Ngumoha átti frábæra innkomu af bekknum
Rio Ngumoha átti frábæra innkomu af bekknum
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að Nottingham Forest hafi verðskuldað að minnsta kosti stig úr leik liðanna á City Ground-leikvanginum í dag, en Liverpool stal sigrinum seint í uppbótartíma.

Forest var yfir á öllum sviðum fótboltans í fyrri hálfleik og átti einnig góð færi í þeim síðari.

Á lokamínútunum kom Liverpool boltanum tvisvar í netið. Fyrra markið var tekið af Alexis Mac Allister þar sem boltinn fór af olnboganum á honum og í netið, en seinna stóð er Mac Allister hirti frákast í teignum.

Slot var óánægður með margt í leiknum og segir Forest hafa verðskuldað stig.

„Heppni er alltaf partur af þessu ef þú skorar á síðustu mínútunni, en við höfum upplifað þetta svo oft á þessu tímabili og þá er ég ekki að tala um að fá á okkur mark á síðustu mínútu, það hefur líka gerst, heldur um að fá meira en við verðskulduðum.“

„Jafntefli hefði verið sanngjarnari úrslit en sigur.“

„Við töpuðum hverjum einasta bolta í fyrri hálfleik og gátum ekki haldið honum í eina sekúndu. Eina sem gekk vel var að verjast í teignum. Leikmenn voru að kasta sér fyrir langar sendingar og þurftu að verjast föstum leikatriðum. Það gerðum við vel og þannig héldum við okkur inn í leiknum.“

„Í seinni hálfleik sá ég eitthvað allt annað. Við tókum yfir leikinn og kannski af því þeir spiluðu á fimmtudag. Í fyrsta sinn á þessu tímabili var þetta okkur í hag að liðið sem við spiluðum við var að spila á fimmtudag og við vorum í fríi,“
sagði Slot.

Slot segist ánægður að seinna markið hafi fengið að standa og vonast til að gæfan sé loks að snúast þeim í hag.

„Miðað við hvernig tímabilið hefur verið þá hefði ekki komið mér á óvart ef bæði mörkin hefðu verið tekin af okkur, en kannski er gæfan loksins að snúast okkur í hag,“ sagði Hollendingurinn.

Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha kom inn af bekknum í seinni og gjörbreytti leiknum fyrir Liverpool. Slot hrósaði honum í hástert.

„Fyrsta markið sem var tekið af var aðallega út af honum. Þetta var frábær fyrirgjöf á Hugo og vanalega býst maður við marki þarna, sérstaklega af því Hugo er svo góður að afgreiða boltann í netið.“

„Þetta var góð sókn hjá honum, einn á móti einum. Þetta var það sem leikurinn þurfti. Annað hvort fast leikatriði eða svona augnablik og þess vegna setti ég hann inn á. Fyrst á vinstri vænginn þar sem hann komst ekki mikið inn í leikinn og svo á hægri þar sem hann komst meira inn í leikinn.“

„Hann hefur þegar spilað stóra rullu miðað við að vera 17 ára gamall. Segðu mér hvaða úrvalsdeildarlið er að spila 17 ára leikmanni svona mikið? Það segir þér hversu hæfileikaríkur hann er og hversu mikils við metum hann,“
sagði Slot í lokin.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner
banner