Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði sigurmark Twente í 2-1 sigrinum á Groningen í Íslendingaslag í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum með Twente.
Íslenski landsliðsmaðurinn var í byrjunarliði Twente á meðan Brynjólfur Andersen Willumsson byrjaði á bekknum hjá Groningen.
Groningen braut ísiinn á 35. mínútu með marki Marvin Peersman áður en Daan Rots jafnaði metin fyrir Twente aðeins fáeinum mínútum síðar.
Strax í upphafi síðari hálfleiks gerði Kristian Nökkvi sigurmarkið er hann vann boltann af varnarmanni Groningen, komst einn í gegn og kláraði yfirvegað undir markvörð gestanna.
Kristian, sem er 22 ára gamall, hefur verið í stuði með Twente í síðustu leikjum og skorað þrjú mörk á rúmum tveimur vikum.
Alls er hann kominn með fimm mörk og tvær stoðsendingar með Twente í deildinni.
Brynjólfur kom inn af bekknum hjá Groningen þegar tæpur hálftími var eftir.
Twente er í 5. sæti deildarinnar með 38 stig en Groningen í 8. sæti með 31 stig.
En daar is de 2-1 van Hlynsson! ????????#fctwente #cote #enschede #twegro #fcgroningen #eredivisie pic.twitter.com/mYs36Rt2kc
— Twente Insite (@TwenteInsite) February 22, 2026
Athugasemdir



