Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
   þri 22. september 2015 21:20
Alexander Freyr Tamimi
Glódís: Ekki oft sem menn heyra ekki í hvor öðrum
Kvenaboltinn
Glódís átti góðan leik í kvöld.
Glódís átti góðan leik í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður íslenska landsliðsins, var að vonum ánægð eftir 2-0 sigurinn gegn Hvíta-Rússlandi í fyrsta leik í undankeppni EM 2017 á Laugardalsvelli í kvöld.

Íslenska liðið hafði mikla yfirburði allan leikinn og var sigurinn, sem hefði getað verið stærri, fyllilega verðskuldaður.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  0 Hvíta-Rússland

„Við erum rosalega ánægðar með þennan sigur, það skiptir miklu máli að fara vel af stað, halda hreinu og ná að skora tvö mörk. Þetta er náttúrulega rosalega erfiður leikur þannig lagað, þar sem þær eru bara að pakka og eru með blokkir sem er erfitt að komast í gegnum. En mér fannst við ná að halda þolinmæðinni og við náðum að skora tvö virkilega góð mörk," sagði Glódís eftir leikinn.

Glódís var í raun í meira sóknarhlutverki en varnarhlutverki í þessum leik og átti margar frábærar sendingar á sóknarmenn Íslands.

„Ég lendi nú ekki oft í því en það var bara gaman að vera ofar og fá að vera með í spilinu. Við vorum alveg meðvitaðar að við yrðum að vera tilbúnar, þær geta alveg break-að," sagði Glódís, sem þakkaði kærlega fyrir góðan stuðning, en yfir 3000 manns mættu á völlinn.

„Ég er ótrúlega ánægð og þakklát fyrir stuðninginn, það skiptir ótrúlega miklu máli. Það er ekki oft sem menn heyra ekki í hvor öðrum inni á vellinum út af stuðningi, það er bara frábært," sagði Glódís.

Viðtalið má sjá hér að ofan.


Slapp
banner
banner