Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslandssögunnar, birti skemmtilega mynd af sér og Pep Guardiola, stjóra Manchester City, á Instagram í gær.
Guardiola fylgdist ekki mikið með leik Tottenham og Arsenal í gær þar sem hann var mættur til Ítalíu.
Guardiola fylgdist ekki mikið með leik Tottenham og Arsenal í gær þar sem hann var mættur til Ítalíu.
Guardiola mætti á leik Brescia gegn Pro Patria í ítölsku C-deildinni og var þar heiðursgestur.
Guardiola spilaði 24 leiki með Brescia á milli 2001 og 2003. Þá var félagið í A-deild og spilaði Guardiola með leikmönnum á borð við Roberto Baggio og Luca Toni.
Það hefur mikið gengið á hjá Brescia síðustu ár og varð félagið gjaldþrota fyrir ekki svo löngu. Það gladdi því menn í kringum félagið þegar hann mætti á svæðið í gær.
Birkir, sem spilaði tvisvar með Brescia seint á ferlinum, var greinilega einnig á leiknum og hitti Guardiola eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Athugasemdir

