City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 23. febrúar 2026 23:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Bologna getur þakkað VAR fyrir sigurinn
Mynd: EPA
Bologna 1 - 0 Udinese
1-0 Federico Bernardeschi ('75 , víti)

Bologna vann annan leikinn sinn í röð í ítölsku deildinni þegar liðið fékk Udinese í heimsókn í kvöld.

Federico Bernardeschi var hetja liðsins en hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.

Bologna fékk upphaflega aukaspyrnu við vítateigslínuna þegar brotið var á Santiago Castro. Leikmenn Bologna mótmæltu ekki dómnum og voru tilbúnir að taka aukaspyrnuna áður en dómarinn stöðvaði leikinn og eftir tveggja mínútna skoðun í VAR dæmdi hann vítaspyrnu.

Jesper Karlstrom var sá brotlegi en VAR sýndi að brotið byrjaði inn í teignum. Bologna er í 8. sæti með 36 stig en Udinese er í 11. sæti með 32 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner