Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fös 26. mars 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirgefur Celtic eftir að hafa spilað meira en 600 leiki fyrir félagið
Scott Brown.
Scott Brown.
Mynd: Getty Images
Harðhausinn Scott Brown mun í sumar yfirgefa herbúðir Celtic í Skotlandi og ganga til liðs við Aberdeen.

Hann mun spila fyrir Aberdeen en ásamt því verður hann hluti af þjálfaraliði félagsins.

Brown er goðsögn hjá Celtic en hann hefur spilað fyrir félagið frá 2007. Á þeim tíma hefur honum tekist að spila meira en 600 keppnisleiki fyrir félagið.

Brown, sem er 35 ára gamall, miðjumaður, skrifaði undir tveggja ára samning við Aberdeen.

Celtic hafði unnið skosku úrvalsdeildina níu ár í röð fyrir tímabilið í ár. Rangers tók titilinn í ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner