Hafsteinn Briem leikmaður ÍBV var hundsvekktur með niðurstöðuna á Kópavogsvelli í dag.
"Það var ákveðinn doði yfir okkur, sérstaklega sóknarlega. Við vorum skipulagðir fannst mér og þeir fá í rauninni bara þetta eina færi sem þeir skora úr en það var ekki mikið að frétta af sóknarleiknum okkar í dag, því miður".

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 ÍBV
Vestmanneyingar fóru aldrei í að gera stórt áhlaup í leiknum, var það af því að menn vissu stöðuna í öðrum leikjum.
"Ég vissi það ekki fyrr en einhver gaur með gjallarhorn upp í stúku las þau upp.
Það hefur smá áhrif á mann og við strákarnir fórum að tala um það inni á vellinum en ég hefði bara viljað að þess þá heldur hefðum við átt að fara all in og jafna".
Hvað fannst honum um þetta inngrip vallarþulsins í einbeitingu leikmanna?
"Mér finnst fáránlegt að vallarþulurinn sé að góla þetta í svona þýðingarmiklum leik. Það er ekkert hægt að gera í því að áhorfendur séu að því."
Hefur Hafsteinn kortlagt sitt framhald, verður hann áfram í Eyjum?
"Ég er samningsbundinn eitt ár í viðbót og er leikmaður ÍBV "
Nánar er rætt við Hafstein í viðtalinu sem fylgir.