Ruben Amorim, fyrrum stjóri Manchester United, hefur ekki í hyggju að taka við nýju liði í sumar en þetta herma heimildir portúgalska miðilsins ABola.
Amorim var rekinn frá United í byrjun árs eftir að hafa stýrt liðinu í rúmt ár.
Hugmyndafræði hans náði ekki til leikmanna og á endanum missti stjórinn klefann.
Amorim, sem hafði áður gert stórkostlega hluti með Sporting í heimalandinu, er ekki að íhuga að snúa aftur í þjálfun í sumar, en hann ætlar halda áfram að fræða sig og slípa hugmyndafræði sína til með því að fylgjast með uppáhalds þjálfurum sínum í boltanum.
Talið er að hann muni ferðast á milli landa til þess að deila hugmyndum sínum með öðrum þjálfurum og bera saman bækur til að sjá hvað fór úrskeiðis og hvernig hann geti bætt sig.
Það má því gera ráð fyrir að áhugamenn um fótbolta fái að sjá Amorim aftur á hliðarlínunni á næsta ári og aldrei að vita nema hann komi með endurkomu í ensku úrvalsdeildina.



