Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   fös 15. maí 2026 14:44
Kári Snorrason
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Fullhlaðinn Elmar.
Fullhlaðinn Elmar.
Mynd: Kári Snorrason
Elmar Kári Enesson Cogic fór á kostum í 5-2 sigri Aftureldingar á Njarðvík í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Elmar skoraði tvö mörk en lét það sér ekki nægja og lagði upp þrjú til viðbótar.

Elmar Kári gerði sér leið á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag þar sem hann tók á móti verðlaunum frá Mjólkursamsölunni ásamt því að ræða við undirritaðan.

„Við lögðum upp með það að mæta helvíti grimmir og það tókst. Við gerðum allt sem við lögðum upp með. Þetta tók smá tíma en eftir fyrsta markið, þá fannst ég mér við vera klárir.“

Elmar skoraði huggulegt mark úr aukaspyrnu: „Loksins datt það, ertu að grínast? Það var kominn tími til.“

Afturelding fær Stjörnuna í heimsókn í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, leikdagarnir eru 7. og 8. júní.

„Ef þú ætlar að gera eitthvað í þessari keppni verður maður að vinna öll þessi lið. Það er fínt að fá þá núna, við munum gera alvöru leik úr þessu.“

Er kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ?
„Já, svei mér þá. Ég held að við höfum farið lengst í 8-liða úrslit. Það væri skemmtilegt að komast lengra núna.“


Slapp
banner