Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Ögmundur: Hélt að Fjalar væri að hringja út af öðru
Eimskip
Var síðast í landsliðinu 2021.
Var síðast í landsliðinu 2021.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjalar er markmannsþjálfari landsliðsins.
Fjalar er markmannsþjálfari landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson var á miðvikudag mjög óvænt valinn í landsliðshópinn fyrir komandi vináttuleik gegn Japan í Tókýó í lok mánaðar.

Ögmundur er fæddur 1989 og á að baki 19 A-landsleiki. Hann var síðast valinn í landsliðshóp í júní 2021. Ögmundur er á samningi hjá Val en hefur ekkert æft með liðinu síðustu vikurnar. Hann stóð vaktina í leikjum á undirbúningstímabilinu og var á bekknum í fyrstu tveimur umferðum Bestu deildarinnar.

Fótbolti.net ræddi við Ögmund um landsliðsvalið.

Um að gera að segja já þegar landsliðið kallar
„Það eru einhverjar vikur síðan að Fjalar (Þorgeirsson, markmannsþjálfari) hringdi í mig fyrst varðandi mögulegt val. Hann hleraði mig hvernig ég sæi þetta og hvort þetta væri möguleiki frá mér séð. Ég var heiðarlegur með hvernig þetta leit við mér, samtalið þróaðist og mér leist bara vel á þetta. Þegar maður er valinn í landsliðið þá er um að gera að segja já við því," segir Ögmundur.

Þegar þetta er skrifað er Ögmundur annar af tveimur markmönnum í hópnum en hinn er Hákon Rafn Valdimarsson, varamarkvörður Brentford. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, sagði þó á fréttamannafundi á miðvikudag að hann vonaðist til þess að geta bætt einum markverði við hópinn.

Var strax tekið fram hvert þitt hlutverk verður?

„Nei, það var ekkert þannig. Ég kem með mína reynslu inn í þetta. Ég er valinn sem fótboltamaður, gef allt í það á æfingum, það er planið."

Hélt að Fjalar væri að hringja út af öðru
Fannstu fyrir fiðring þegar Fjalar hringdi?

„Nei, þetta var kannski ekki eins og þegar maður var fyrst valinn. Ég þekki Fjalar ágætlega, ég hélt að hann væri bara að hringja og spjalla út af einhverju öðru. Auðvitað er alltaf gaman að vera valinn."

„Sama hvort það sé Japan eða eitthvað annað, þetta verður gaman. En það skemmir svo sem ekki fyrir að þetta sé Japan, hef aldrei komið þangað og örugglega gaman að sjá."


Klár í að spila
Ögmundur vildi ekki ræða stöðu sína hjá Val. En er hann heill heilsu?

„Ég er heill og klár í að spila."

„Ég er ekki að fara mæta í þetta verkefni án þess að æfa neitt, ég mun halda mér við og set einbeitinguna á það. Það er spurning hvort það verði einstaklingsæfingar eða ekki, það kemur í ljós."


Flytur inn grískar gæðavörur
Hvað gerir Ögmundur utan fótboltans?

„Ég og konan mín rekum fyrirtæki, Sigma ekta grískt, sem flytur inn grískar ólífuolíur og aðrar grískar gæðavörur. Ég er að stússast í því og svo er ég með alls konar viðskiptahugmyndir sem ég er að þróa. Vonandi get ég sett þær fram á næstu vikum eða mánuðum. Maður er alltaf að gera eitthvað," segir Ögmundur að lokum.

Hann þekkir vel til Í Grikklandi eftir að hafa spilað með Olympiakos, AE Larisa og AE Kifisia á árunum 2018-2024.
Slapp
banner