FH er með sjö stig eftir fjóra leiki í Bestu deild kvenna en næsta verkefni liðsins er bikarleikur gegn Lengjudeildarliði Selfoss í kvöld. Leikurinn er liður í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Liðin mætast klukkan 18:00 á JÁVERK-vellinum á Selfossi, grasvellinum. Selfoss er með þrjú stig eftir leiki gegn
Fótbolti.net ræddi við Guðna Eiríksson, þjálfara FH, í aðdraganda leiksins.
Fótbolti.net ræddi við Guðna Eiríksson, þjálfara FH, í aðdraganda leiksins.
FH hefur unnið Stjörnuna og Grindavík/Njarðvík í síðustu tveimur leikjum en tapaði á móti Þrótti og gerði jafntefli við Þór/KA þar á undan. Hvernig líður Guðna með fyrstu umferðirnar?
„Þetta er bara nokkuð fínt, fínn stígandi í þessu finnst mér. Fyrir norðan fengum við á okkur mark eftir að Katla rann á rassinn, það var eina skotið sem Þór/KA átti á okkur. Værum annars með níu stig. Þetta er allt í lagi, á pari myndi ég segja."
Hvernig leggst leikurinn gegn Selfossi í þig?
„Vel, það er alltaf gaman að spila á móti liði í Lengjudeild sem maður spilar alla jafna ekki við yfir sumarið, erum alltaf að spila á móti sömu liðunum. Það er því gaman að fá eitthvað nýtt. Ég á ekki von á öðru en að þetta verði dæmigerður bikarleikur, liðið úr deild fyrir neðan mun mæta dýrvitlaust til leiks og ætlar að sýna sig og sanna á móti liði úr Bestu deildinni. Við þurfum að taka þessu verkefni mjög alvarlega. Við erum með góða breidd og getum nýtt það í þessu álagi sem er núna," segir Guðni.
FH fór alla leið í bikarúrslitin í fyrra en tapaði þar gegn Breiðabliki. Hér að neðan má nálgast viðtal við fyrirliða Selfoss, Brynju Líf, fyrir leikinn.
Umferðin í bikarnum
föstudagur 15. maí
17:00 Valur-Grindavík/Njarðvík (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:00 Þór/KA-Stjarnan (VÍS völlurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
18:00 Selfoss-FH (JÁVERK-völlurinn)
laugardagur 16. maí
13:00 Tindastóll-ÍBV (Sauðárkróksvöllur)
13:00 Fylkir-FHL (tekk VÖLLURINN)
15:00 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)



