Leik ÍBV og Víkings á sunnudag hefur verið flýtt um þrjár klukkustundir og mun leikurinn því hefjast klukkan 13:00 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum en ekki 16:00 eins og upphaflega var gert ráð fyrir.
Eins og kom fram hér á Fótbolta.net í vikunni ætla Víkingar að fara til Vestmannaeyja daginn áður og æfa þar daginn fyrir leik.
Eins og kom fram hér á Fótbolta.net í vikunni ætla Víkingar að fara til Vestmannaeyja daginn áður og æfa þar daginn fyrir leik.
Fyrir umferðina er Víkingur í 2. sæti en getur með sigri í Eyjum komið sér á toppinn, í það minnta um stundarsakir því topplið KR tekur ekki á móti Fram fyrr en nokkrum klukkutímum seinna, klukkan 18:15.
Víkingur hefur unnið fimm deildarleiki í röð en ÍBV hefur tapað fimm í röð.
7. umferð Bestu
sunnudagur 17. maí
13:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |




