Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 10:49
Kári Snorrason
Kveður Everton eftir sautján ára dvöl
Seamus Coleman.
Seamus Coleman.
Mynd: EPA
Seamus Coleman yfirgefur Everton í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Coleman hefur leikið með Everton í sautján ár og er leikjahæsti leikmaður félagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Coleman, sem er 37 ára, hefur boðist þjálfunarstarf hjá Everton en hann segist ætla að íhuga hvort hann muni leggja skóna á hilluna í sumar.

Írinn hefur lítið spilað með liðinu síðustu þrjú ár þar sem hann hefur glímt við mikil meiðsli.

Hann gekk til liðs við Everton frá írska liðinu Sligo Rovers í janúar 2009 fyrir aðeins 60 þúsund pund. Síðan þá hefur hann spilað 372 deildarleiki með liðinu og var hann gerður að fyrirliða 2019.


Slapp
banner
banner