Birkir Már Sævarsson var í byrjunarliði Aftureldingar sem tapaði 7-4 gegn ÍR í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar síðastliðið föstudagskvöld. Þetta var ótrúlegur leikur og mjög óvænt úrslit sem áttu sér stað í Mosfellsbænum.
Rætt var um leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag og þar var spurt að því hvort Birkir hefði áður verið í liði sem hefði fengið á sig sjö mörk í einum og sama leiknum.
Rætt var um leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag og þar var spurt að því hvort Birkir hefði áður verið í liði sem hefði fengið á sig sjö mörk í einum og sama leiknum.
24.04.2026 21:14
Lengjudeildin: Ellefu marka veisla í Mosó - Kári lagði upp þrjú mörk í sigri Fylkis
Skoðum það aðeins nánar.
Birkir Már gekk í raðir Aftureldingar núna stuttu fyrir mót en fyrrum landsliðsmaðurinn er orðinn 41 árs gamall. Hann hefur á ferli sínum spilað um 600 leiki en hann hefur aldrei verið inn á fótboltavellinum í liði sem hefur fengið á sig sjö mörk eða meira.
Hann var í Brann þegar liðið tapaði 8-0 gegn Molde í norska bikarnum árið 2008 en var ekki í leikmannahópnum þann daginn.
Miðað við gögn Transfermarkt hefur Birkir verið í liðum sem hafa fengið á sig sex mörk, meðal annars liði Íslands í tapi gegn Sviss í Þjóðadeildinni hér um árið, en hann hefur aldrei fengið á sig sjö mörk eða meira á sig í keppnisleik fyrr en í leiknum síðastliðið föstudagskvöld.
Birkir hefur þó verið í liðum, í gegnum sinn langa feril, sem hafa skorað sjö mörk eða meira í leik. Birkir hefur spilað meistaraflokksfótbolta frá 2003 þegar hann steig sín fyrstu skref með Val.



