Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 12:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halli: Hann má spila, en það kostar aðeins
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Davíð Helgi Aronsson er lánsmaður hjá Keflavík frá Víkingi en næsti leikur Keflavíkur verður einmitt gegn Víkingi í Keflavík næsta sunnudag.

Davíð er örvfættur miðvörður sem hefur farið vel af stað með Keflvíkingum og var á skotskónum gegn KA í sigri Keflvíkinga í gær.

„Tíminn til þessa hefur verið mjög fínn, mjög góður hópur og skemmtilegir strákar. Við erum með gott lið og ég hef alveg trú á því að við getum afsannað fallspána. Framhaldið leggst mjög vel í mig, það eru Vikes í næsta leik, maður þarf að sitja hjá þá, en það er partur af þessu. Ég skil svo sem að það sé ekki leyft," sagði Davíð Helgi eftir leikinn í gær.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, sagði reyndar að Davíð mætti spila leikinn.

„Við megum náttúrulega spila honum, en það bara kostar aðeins. Við skulum sjá til," sagði Halli.

Heyrst hefur að upphæðin sem Keflavík yrði að greiða Víkingi sé um fjórar milljónir króna.
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Slapp
banner
banner
banner