Davíð Helgi Aronsson skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni er Keflavík vann KA, 2-1, á Greifavellinum í kvöld. Hann fagnaði svo með skemmtilegum hætti og heldur því opnu að taka ný fögn í framtíðinni.
Lestu um leikinn: KA 1 - 2 Keflavík
Davíð kom til nýliða Keflavíkur á láni frá Víkingi fyrir tímabilið og komið sterkur inn í liðið.
Keflvíkingar hafa þurft að bíða þolinmóðir eftir fyrsta sigrinum og var Davíð sáttur með að það hafi loksins dottið í kvöld.
„Bara mjög sáttir með þetta og gríðarlega sterkt að ná í þrjá punkta hérna á Akureyri. Geðveikt að ná fyrsta sigrinum á útivelli.“
„Mér fannst við vera með þetta í fyrri hálfleik og spilum okkar bolta, en í seinni hálfleik skoruðum við seinna markið og föllum aðeins niður. Það er partur af þessu að geta 'sufferað' líka. Við gerðum samt vel að halda þessu út,“ sagði Davíð við Fótbolta.net.
KA komst óvænt yfir með marki frá Oliver Heiðarssyni, en Davíð jafnaði metin og fagnaði því með mögnuðu fagni þar sem hann tók handahlaup og afturábakk heljarstökk.
„Þetta kom eins og sjokk. Við vorum ekki klárir í þetta, en síðan set ég eitt mark og þetta snerist við.“
„Dagur átti að stíga út gaurinn og síðan nær hann að flikka hann. Ég er klár þarna og lúri inn í boxinu. Síðan er þetta fagn sem maður er búinn að æfa, er búinn að halda þessu leyndu,“ sagði Davíð sem gæti tekið fleiri skemmtileg fögn í sumar. „Kannski kemur eitthvað nýtt. Ég er fimleikastrákur,“ sagði hann ennfremur.
Hann segir að Keflvíkingar verði að halda áfram og að sigurinn hafi ekki verið í hættu enda hafi liðið verið yfir á flestum sviðum leiksins.
„Mér fannst við vera með þetta þá og fengum góð færi í byrjun seinni hálfleiks líka. Mér fannst við alltaf vera með þetta og bara spurning um að geta 'sufferað' og við gerðum það.“
„Við erum mjög sáttir og þurfum að halda áfram. Við megum ekki fara að slaka á eitthvað því þetta verður mjög erfitt,“ sagði Davíð, en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Víkingur R. | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 3 | +3 | 7 |
| 3. Valur | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 - 3 | +3 | 6 |
| 4. Stjarnan | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 6 |
| 5. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 6. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 7. Fram | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 4 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 10. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. FH | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 7 | -4 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |
























