Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þrír Tyrkir handteknir í Nottingham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þrír stuðningsmenn Fenerbahce voru handteknir eftir að hafa brotið lög og reglur á City Ground, heimavelli Nottingham Forest á fimmtudagskvöldið.

Lögreglan í Nottingham tilkynnti að rannsókn væri hafin eftir þau ýmsu atvik sem áttu sér stað á City Ground.

37 ára karlmaður var handtekinn fyrir að kasta blysi inn á völlinn sem olli vandræðum. Stöðva þurfti leikinn í nokkrar mínútur meðan blysin voru fjarlægð. Ljóst er að fleiri en einn voru þarna að verki þar sem nokkur blys rötuðu alla leið á grasið.

44 ára karlmaður var handtekinn vegna gruns um líkamsárás gagnvart vallarstarfsmanni og öðrum áhorfenda og að lokum var 38 ára karlmaður handtekinn fyrir að hlaupa inn á grasið.

Stuðningsmenn Fenerbahce hafa verið óhressir eftir stórt tap á heimavelli í fyrri leik liðanna, þar sem Forest vann 0-3 í Tyrklandi. Fenerbahce komst þó í tveggja marka forystu í seinni leiknum í fyrradag en náði ekki að jafna heildarstöðuna og var slegið úr leik.

Þeir eyðilögðu sætin í hluta af gestastúkunni og má Fenerbahce búast við vænri sekt fyrir hegðun stuðningsmanna sinna. Lögregla mun rannsaka myndbandsupptökur frá leiknum í samráði við bæði félög.

Nottingham Forest mætir Elíasi Rafni Ólafssyni og félögum í FC Midtjylland í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Elías Rafn hefur haldið hreinu í tveimur af síðustu þremur leikjum Midtjylland.

   27.02.2026 08:30
„Evrópudeildin er ekki auðveld“

Athugasemdir
banner