Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
„Evrópudeildin er ekki auðveld“
Mynd: EPA
Vitor Pereira, stjóra Nottingham Forest, var létt eftir að liðið komst áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í gær.

Forest vann fyrri leikinn gegn Fenerebahce 3-0 í Istanbúl en lenti tveimur mörkum undir á City Ground.

Pereira, sem þjálfaði áður Fenerbahce, segir að þessi keppni sé langt frá því að vera auðveld.

„Það er ekki auðvelt að halda sama stigi þegar þú breytir hálfu liðinu. Það var á mína ábyrgð því við eigum mikilvægan leik eftir þrjá daga. Ég ákvað að hvíla nokkra leikmenn til að eiga orku inni í næsta leik, en þetta er ekki auvelt þegar þú gerir margar breytingar.“

„Við fengum á okkur mark og misstum sjálfstraustið til að spila boltanum. Það var erfitt fyrir mig að gera fjórar breytingar í einu, en ég ræddi við leikmennina og sagðist hafa tekið þessa ákvörðun sjálfur. Við þurftum að gera þetta því það var komin upp hættuleg staða í leiknum.“

„Þeir skora annað markið en eftir það byrjuðum við að spila okkar bolta. Það er mikilvægt að hafa það hugfast að Evrópudeildin er ekki auðveld. Ég þekki Fenerbahce mjög vel og þeir komu hingað til þess að ná í úrslit.“

„Ég veit það vel að ef þú gerir fimm breytingar þá veistu ekki hvað mun gerast. Ef við hefðum skorað fyrsta markið þá hefðum við kannski fengið sjálfstraustið með fimma nýja leikmenn á vellinum. En stressið og pressan gerði þeim erfiðara fyrir að vera þeir sjálfir því þeir eru ekki að spila hvern einasta leik. Þegar öllu er botninn hvolft þá erum við enn í keppninni, stýrðum seinni hálfleiknum vel og náðum í úrslit. Áfram gakk,“
sagði Pereira í lokin.

Drátturinn í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar fara fram síðar í dag, en Forest mun annað hvort mæta Real Betis eða Midtjylland.
Athugasemdir
banner
banner