Spánarmeistarar Barcelona færast nær því að ganga frá kaupum á Marcus Rashford, sem leikur fyrir félagið á lánssamningi frá Manchester United.
Rashford hefur verið öflugur á tímabilinu og er með 10 mörk og 13 stoðsendingar í 34 leikjum í öllum keppnum.
Barca er með 30 milljón evru kaupákvæði í lánssamningi Rashford og er mjög nálægt því að ná samkomulagi við kantmanninn um kaup og kjör.
Börsungar vilja þó ekki virkja ákvæðið heldur hafa þeir beðið Man Utd um að fá að skipta greiðslunum í þrennt, en Rauðu djöflarnir hafa engan áhuga á því. Þeir vilja fá allar 30 milljónirnar strax til að selja leikmanninn.
Rashford er samningsbundinn Man Utd til sumarsins 2028, eða í rúmlega tvö ár í viðbót.
25.02.2026 06:00
Deco hitti umboðsmenn Rashford
Athugasemdir



