Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, hitti umboðsmenn Marcus Rashford í byrjun þessarar viku.
Viðræður eru hafnar um að Rashford færi sig alfarið yfir til Barcelona í sumar en hann er núna á láni frá Manchester United.
Viðræður eru hafnar um að Rashford færi sig alfarið yfir til Barcelona í sumar en hann er núna á láni frá Manchester United.
Barcelona hefur skoðað það að reyna að lækka verðmiðann sem samið var um síðasta sumar en Man Utd hefur engan áhuga á því. Umsamið kaupverð er 30 milljónir evra.
Rashford vill vera áfram hjá Barcelona og því ættu viðræðurnar að ganga vel ef Börsungar geta svo borgað það sem samið var um síðasta sumar.
Rashford hefur átt mjög gott tímabil í Katalóníu þar sem hann hefur skorað tíu mörk og lagt upp önnur tíu.
Athugasemdir



