Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 22:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Inter Miami í viðræðum um Casemiro
Mynd: EPA
Casemiro mun yfirgefa Man Utd þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Fabrizio Romano greinir frá því að bandaríska félagið Inter Miami hafi rætt við umboðsmenn Casemiro og lagt fram tilboð. Casemiro er opinn fyrir því að ganga til liðs við félagið.

Hann er eftirsóttur en hann hefur verið orðaður við bandaríska félagið LA Galaxy og sádi arabíska félagið Al-Ittihad.

Casemiro er 34 ára gamall brasilískur miðjumaður. Hann gekk til liðs við Man Utd frá Real Madrid árið 2022. Hann hefur spilað 155 leiki og skorað 24 mörk. Hann hefur skorað sjö af 13 mörkum sínum í úrvalsdeildinni á þessu tímabili.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner