Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
   fim 12. júlí 2012 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Rúnar Kristinsson: Þessar æfingar eru alltaf hundleiðinlegar
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
,,Ég er alls ekki sáttur, en við áttum kannski ekki mikið meira skilið meðað við hvernig við spiluðum," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-inga eftir 1-1 jafntefli gegn Keflvíkingum í kvöld.

,,Við spiluðum ekki góðan leik og Keflvíkingarnir voru meira ógnandi en við. Þó svo við höfum verið meira með boltann, þá voru þeir alltaf ógnandi þegar þeir voru með hann og sköpuðu sér fleiri færi en við alla vega."

,,Þeir komu mér ekki á óvart, þeir eru mjög vel skipulagðir. Þetta eru flinkir ungir strákar margir hverjir í blandi við þessa eldri leikmenn sem fyrir eru. Þeir eru bara með skipulagt lið og leika fína knattspyrnu, sem er bara gaman að sjá."

,,Þeir féllu náttúrulega dálítið aftarlega á völlinn og leyfðu okkur að hafa boltann og beittu síðan skyndisóknum. Við féllum oft fyrir því og létum þá fá boltann og bjóðum upp á þetta, en sem betur fer komumst við inn í hálfleik með markalaust jafntefli."

,,Við gátum lagað aðeins okkar leik sem að skánaði í þeim síðari, en náðum bara ekki að halda út þessu eina marki sem við höfðum."

,,Ég bara veit ekki hvort ÍBV leikurinn sitji í okkur. Menn voru ágætlega ferskir á æfingum í vikunni og menn eru ekkert að kvarta yfir því að spila fótboltaleiki þar sem það er það skemmtilegasta það sem við gerum, það eru þessar æfingar sem eru hundleiðinlegar."


Rúnar gæti skoðað markaðinn, en félagaskiptiglugginn opnar eftir þrjá daga.

,,Maður heldur augunum opnum bara og fylgist með hvað er að gerast í kringum sig, en við höfum ekki tekið neinar ákvarðanir með eitt né neitt ennþá. Þetta kemur bara í ljós á næstu vikum," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner