Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   mið 08. apríl 2026 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
'Það kom svolítð á óvart, en ég er vanur þessu'
'Það kom svolítð á óvart, en ég er vanur þessu'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Við munum nota góðu kaflana í þeim leik og laga slæmu kaflana'
'Við munum nota góðu kaflana í þeim leik og laga slæmu kaflana'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Mér líður mjög vel með hópinn'
'Mér líður mjög vel með hópinn'
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Bestu deildinni var opinberuð á kynningarfundi í dag. Víkingi var spáð Íslandsmeistaratitlinum en Þór var spáð neðsta sætinu.

Þórsarar unnu Lengjudeildina í fyrra og eru komnir í efstu deild í fyrsta sinn í tólf ár. Fótbolti.net spáir Þór 10. sæti í deildinni. Spáin í dag kom þjálfara Þórs, Sigurði Heiðar Höskuldssyni, á óvart.

„Það er bara fínt, bjóst fyrir allar spár að við yrðum einhversstaðar í kringum neðstu sætin og við höfum verið fyrir ofan 12. sætið í hinum spánum skilst mér. Það kom svolítð á óvart, en ég er vanur þessu og ég held að það eina sem þetta geti gert er að henda einhverju bensíni á klúbbinn," segir Siggi sem var þjálfari Leiknis þegar liðinu var spáð neðsta sæti deildarinnar bæði 2021 og 2022.

Þjálfarinn segist ekki vera að leita að liðsstyrk á markaðnum. „Mér líður mjög vel með hópinn, held að við höfum styrkt hann gríðarlega vel. Það eru 2-4 leikmenn sem eru vinna í að komast í betra stand eftir erfiðan vetur, þeir eru að nálgast þetta. Ég er mjög spenntur að sjá hvernig þeir koma inn í þetta."

Mikið próf að mæta liði sem ætlar sér að vinna titilinn
Þór mætir Val í fyrsta leik, liðin mætast á Hlíðarenda á sunnudag.

„Það leggst frábærlega í mig, við erum að fara spila við lið sem stefnir á titilinn. Val er spáð 6. sæti hér t.d. og þeir eru líka í að sanna sig fyrir þeim sem eru að spá þessu. Það verður mikið test fyrir okkur sem nýliðum og liði sem spáð er neðsta sæti að fara og keppa við lið sem ætar sér titilinn á útivelli í fyrsta leik. Það verður mjög spennandi og við þurfum að vera alveg 100% í þeim leik."

Þór tapaði 2-4 gegn FH í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi. Verður hægt að nýta það sem eitthvað spark í rassinn?

„Maður notar allt. Ég held það sé ekkert lið sem spilar í deildunum hérna sem hefur ekki tapað leik. Þó að við höfum tapað í síðasta leik þá vorum við að spila í efstu deild, liði sem spáð er fyrir ofan okkur. Að tapa þeim leik, það bara gerist. Við munum alveg pottþétt nota það (sem spark í rassinn). Við munum nota góðu kaflana í þeim leik og laga slæmu kaflana," segir Siggi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner