Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   mið 08. apríl 2026 16:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
'Heilt yfir hefur tíminn á Skaganum til þessa verið æðislegur'
'Heilt yfir hefur tíminn á Skaganum til þessa verið æðislegur'
Mynd: Berndsenphoto
Gísli og Höskuldur.
Gísli og Höskuldur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Mér leið bara furðuvel í gulu treyjunni'
'Mér leið bara furðuvel í gulu treyjunni'
Mynd: Berndsenphoto
„Ég er ótrúlega spenntur, gaman að þetta sé loksins að bresta á og ég held að við séum tilbúnir í þetta. Heilt yfir hefur tíminn á Skaganum til þessa verið æðislegur, við fjölskyldan erum búin að koma okkur mjög vel fyrir. Við höfum nýtt undirbúningstímabilið og tímann í Akraneshöllinn vel, búið að vera gott undirbúningstímabil," segir Gísli Eyjólfsson (1994) við Fótbolta.net eftir kynningarfund Bestu deildarinnar í dag.

Gísli samdi við ÍA í vetur eftir að hafa leikið með Halmstad í Svíþjóð í tvö tímabil. Talsvert hefur verið rætt og ritað um að hann sé nú kominn í ÍA en ekki í Breiðablik þar sem hann er uppalinn.

„Mér leið bara furðuvel í gulu treyjunni, leið mjög vel að fara í gulu treyjuna og hefur liðið mjög vel á öllu undirbúningstímabilinu. Vonandi heldur sú tilfinning áfram í gegnum sumarið."

Hjá Blikum var hann í nokkuð sóknarsinnuðu hlutverki, fékk leyfi til að sprengja upp af miðsvæðinu með boltann þegar tækifæri var á. Er hann í svipuðu hlutverki og hjá Breiðabliki?

„Ég held það, þetta er mjög svipað."

Alltaf liðið vel á Kópavogsvelli
Gísli heimsækir Kópavogsvöll strax í 2. umferð deildarinnar. Hvernig verður að spila á móti Blikum í sumar?

„Ég held það verði ótrúlega gaman, fæ að sjá andlitin sem maður var í kringum í öll þessi ár. Mér leið alltaf mjög vel þarna og hefur alltaf liðið vel á Kópavogsvelli."

Hefði verið rómantík
Fyrirliði Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson, sagði í viðtali á 433 í vetur að hann var svekktur með að Breiðablik reyndi ekki að fá Gísla í vetur. Hvernig var að heyra það?

„Hann er alltaf tuðandi hvort eð er...," segir Gísli léttur. „Ég get alveg tekið undir að það hefði verið gaman fyrir okkur æskuvinina að fá að spila saman og enda ferlana okkar saman. Maður gerir svo bara það sem er best fyrir mann sjálfan. Það hefði verið rómantik."

ÍA mætir Fram í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag og ræðir Gísli um þann leik í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner
banner