Í dag er komið að fasta liðnum Framtíðarmenn Íslands þar sem fjallað er um ungu og efnilegustu leikmenn Íslands.
Næsti leikmaður sem fjallað verður um í dag er einn af efnilegri miðjumönnum landsins, en það er Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Reading í Englandi, sem er þó þessa stundina á láni hjá Crewe Alexandra í ensku annarri deildinni.
Næsti leikmaður sem fjallað verður um í dag er einn af efnilegri miðjumönnum landsins, en það er Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Reading í Englandi, sem er þó þessa stundina á láni hjá Crewe Alexandra í ensku annarri deildinni.
Fæðingadagur: 8.september 1989
Félög: FH til ársins 2003. Breiðablik frá 2003-2005. Reading 2005-. Shrewsbury Town (1 mánaðar lán), Crewe Alexandra janúar 2009-.
Landsleikir: Ísland U17: 3 leikir/2 mörk, Ísland U18: 3 leikir/1 mark, Ísland U19: 12 leikir/7 mörk, Ísland U21: 6 leikir/1 mark
Liðinu gekk ágætlega á Íslandsmótinu og endaði í 4. sæti, þar sem Gylfi lék meðal annars með Bjarna Þór Viðarssyni, leikmanni Twente í Hollandi og þjálfarinn þeirra var Magnús Þór Jónsson, fyrrverandi þjálfari ÍR í fyrstu deildinni.
Þegar haldið var á Faxaflóamótið það ár gekk liðinu hins vegar illa og endaði í sjötta og seinasta sæti í sínum riðli.
Þegar Gylfi komst á eldra ár í 4. flokki ákvað hann að skipta yfir í Breiðablik, en það var aðallega vegna aðstæðna hjá FH sem stóðust engan veginn kröfur frá metnaðarfullum knattspyrnumanni.
,,Það var aðallega vegna þess að þá var FH ekki með upphitað gervigras eða 'höll' og það var alltaf frosið og aldrei hægt að æfa þar. Svo ég fór í Breiðablik til að geta æft inni allan veturinn, þótt ég hefði viljað vera í FH allan tímann," sagði Gylfi í samtali við Fótbolta.net.
Eftir að Gylfi kom til Breiðabliks var hann kominn í sigursælt lið. Liðið lenti í 2.sæti í B-deild Íslandsmótsins og komst þar með upp ásamt nágrönnunum í HK. Þá vann liðið Faxaflóamótið örugglega með því að leggja Aftureldingu af velli úrslitaleiknum 5-1.
Næsta tímabil gekk hann í 3. flokkinn og spilaði nokkra leiki með liðinu á Íslandsmótinu. Hann var frá vegna meiðsla einhvern hluta af tímabilinu, og lenti liðið í 3.sæti A-deildarinnar. Þá stóðst liðið ekki væntingar á Faxaflóamótinu og endaði í 4.sæti í sínum riðli.
Fer á reynslu til Reading
Það kom þó ekki í veg fyrir að hann færi á reynslu til enska fyrstu deildar félagsins Reading FC, þar sem Ívar Ingimarsson lék þá. Hann fór hann nokkrum sinnum þangað út til að reyna fyrir sér auk þess sem hann fór í sama mánuði á reynslu til Preston North End.
Þar lék hann tvo leiki, þá einn fyrir U-15 ára liðið og annan fyrir U-16 ára liðið og skoraði í báðum leikjum sem varð til þess að honum var boðið að taka þátt á Dallas Cup, sem er haldið í Bandaríkjunum. Þar voru lið á borð við Real Madrid, AC Milan, Manchester United, Everton, Ajax, Bayer Leverkusen, Glasgow Celtic, Boca Juniors og River Plate.
Gylfi samþykkti boðið að taka þátt á mótinu með Preston sem var haldið í lok mars 2005. Liðið datt þar út fyrir liði frá Mexíkó sem endaði með því að vinna mótið.
,,Já, ég fór á það mót með þeim.Þetta var mjög sterkt mót og mörg góð lið að spila þar, en okkur gekk mjög vel og ef ég man rétt þá duttum við út í 8 liða eða 4 liða úrslitum móti liði frá Mexico sem vann svo mótið," sagði hann.
Hann hafði farið tvisvar sinnum á reynslu til Preston áður, og átti að koma í þriðja skiptið en þá var breytt um þjálfara hjá unglingaliðinu þar sem þeir voru ekki að skila nægilega mörgum leikmönnum upp í aðalliðið og því varð ekkert úr því.
,,Ég fór þangað tvisvar á reynslu og átti að koma aftur en áður en ég kom í þriðja skiptið þá var skipt um alla þjálfarana í unglingaliðunum því þeir voru ekki að skila nógu mörgum strákum uppí aðaliðið svo það varð ekkert úr því."
Síðasta tímabilið á Íslandi
Það þýddi þó ekkert annað en að einbeita sér áfram með Breiðablik og átti það eftir að verða hans besta og seinasta tímabil með Blikunum. Þeir byrjuðu á því að rúlla upp Faxaflóamótinu, en liðið endaði í 1. sæti í A-riðlinum með 12 stig.
Í undanúrslitum mættu þeir til leiks gegn Njarðvík sem þeir burstuðu með 5-1 sigri og enduðu með því að taka ÍA í úrslitum 3-0 öruggt.
Íslandsmótið var með sama móti. Liðið endaði í 1.sæti með 32 stig úr 14 leikjum með markatöluna 52-21 og Gylfi varð næst markahæsti maður mótsins með 8 mörk samkvæmt leiksýrslum KSÍ. Þarna var hann að leika með vel þekktum knattspyrnumönnum þjóðarinnar í dag.
Það voru þeir Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður AZ Alkmaar sem sló í gegn í Landsbankadeildinni síðasta sumar með Breiðablik og er í íslenska A-landsliðinu, og Viktor Unnar Illugason, sem leikur með Val í efstu deild karla og var á mála hjá Reading ásamt Gylfa.
Þetta sumar kláruðu Blikarnir þrennuna í 3. flokknum, en þeir unnu einnig bikarkeppnina þar sem þeir byrjuðu á að leggja Selfoss af velli 6-2 þar sem Gylfi skoraði eitt marka liðsins. Þar á eftir unnu þeir KR í 8-liða úrslitum og var Gylfi aftur á skotskónum í 5-0 sigri. Í undanúrslitum lögðu þeir Stjörnuna 3-2 og kláruðu svo úrslitaleikinn með sigri á ÍA í vítaspyrnukeppni en staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma.
Að lokum samdi Gylfi við Reading til þriggja ára og gekk til liðs við félagið í september 2005.
,,Þetta var bara mjög flottur klúbbur sem ætlaði sér að vera í úrvalsdeildinni eftir nokkur ár og voru að byggja upp klúbbinn og æfingasvæðið hjá sér hægt og rólega. Svo var Ívar Ingimarsson þarna svo það skemmdi ekkert fyrir að hafa íslending í liðinu," sagði hann.
Frábær byrjun hjá Reading
Það má segja að Gylfi hafi átt sannkallaða draumabyrjun fyrir félagið, en hann byrjaði á því að skora tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir félagið er U-16 ára lið Reading mætti Watford. Hann hélt áfram góðri byrjun með því að skora í leik U-17 ára liðsins í 4-2 sigri á Tottenham, en hann lék á miðjunni í þeim leik.
Hann hélt áfram að spila vel ásamt því að skora og leggja upp mörk fyrir unglingaliðin. Það var svo aðeins þrem mánuðum eftir að hann gekk til félagsins þá var hann byrjaður að æfa með U-19 ára liðinu, þá aðeins 16 ára gamall, en bjóst hann við að fikra sig svona fljótt áfram?
,,Nei reyndar ekki, ég bjóst við að spila allt fyrsta tímabilið með U-16 ára liðinu en spilaði ekki nema í þrjá mánuði með þeim held ég og var þá kominn inni U-19 ára liðið sem var mjög fínt. Það var það sem ég vildi þegar ég kom út að komast sem fyrst í 19 ára liðið og koma mér svo í varaliðið eftir það," sagði hann.
Í febrúar 2006 var hann byrjaður að vera í leikmannahópi varaliðsins og lykilmaður U-19 ára liðsins þar sem hann lék ávalt vel á miðjunni. Fyrsti leikur hans fyrir varaliðið var gegn ekki síðra liði en Arsenal, en þar mætti hann mönnum á borð við Theo Walcott, Ashley Cole, Aleksandr Hleb, Manuel Almunia, Gael Clichy og Robin van Persie.
Hann var farinn að leika mun meira með varaliðinu síðar meir og var yfirleitt í leikmannahóp liðsins ásamt því að byrja inná í nokkrum leikjum.
,,Ég var búinn að vera mikið á bekknum með varaliðinu meðan ég var á fyrsta og öðru árinu í 19 ára liðinu. Svo það var kominn tími á að fara byrja eitthverja leiki með þeim, en þegar það gerðist var ég mjög sáttur með það og náði að halda mér inni liðinu eftir það," sagði hann.
Þetta tímabil reyndist Gylfi markahæsti leikmaður U-19 ára liðsins með 11 mörk, og í stöðu sinni sem sóknar miðjumaður og varð svo gerður að fyrirliða liðsins.
,,Já það gékk mjög vel það tímabil, held það hafi einn framherjinn verið með jafn mörg mörk og ég það árið. En það kom mér ekkert að óvart eitthvað þannig séð. Ég fer mikið fram og er svona sóknarmiðjumaður svo það hlítur að koma að því að maður nái að pota einu og einu inn."
Hann hélt áfram að spila með U-19 ára liðinu og varaliðinu árið 2007, ásamt því að leika með U-19 ára landsliði Íslands þar sem hann tryggði liðinu 1-0 sigur gegn Skotum í Njarðvík, en hann hafði skorað laugardaginn áður í 3-0 sigri gegn Skotlandi einnig.
Hann hafði verið fastamaður í öllum unglingaliðum Íslands og hefur skorað 11 mörk í 24 unglingalandsleikjum, en undanfarið hefur hann leikið með U-21 árs landsliðinu og hefur leikið með þeim 6 leiki og skorað eitt mark.
Nýr samingur við Reading - Fékk ekki að fara til FH
Í apríl 2008 ákvað Gylfi svo að framlengja samning sinn við Reading til næstu tveggja ára, en hafði þá verið að leika einungis með U-19 og varaliðinu, en hann hafði einnig áhuga á því að spila á Íslandi um sumarið en fékk ekki leyfi frá þjálfurum að fara á lán.
,,Þeir buðu mér fínan samning, buðu mér fyrst 3 og hálft ár en ég ákvað að semja bara í 2 ár. Ég var líka mjög sáttur með að vera hérna lengur, fínn bær hérna og stutt í London svo ég þurfti ekkert að drífa mig neitt annað," sagði hann.
,,Ég hafði mikinn áhuga á því að spila með FH síðasta sumar, en ekkert varð úr því vegna þess að þjálfararnir hjá Reading vildu að ég fengi góða hvíld yfir sumarið enda langt tímabil framundan," sagði hann enn fremur.
Um sumarið spilaði hann æfingaleiki með aðalliði Reading og náði að koma sér á blað með því að skora gegn Didcot Town í 9-0 sigri, en hann spilaði rúmlega hálftíma í leiknum og skoraði á 74. mínútu.
Eftir að hafa spilað vel með aðalliðinu í æfingaleikjunum fékk hann hins vegar fá tækifæri í ensku fyrstu deildinni, en tækifærið hans kom í enska deildarbikarnum gegn Stoke City í vítaspyrnukeppni. Gylfi fékk þá að taka eina af vítaspyrnunum og skoraði örugglega úr sinni, en hann hafði komið inn á sem varamaður fyrir Brynjar Björn Gunnarsson á 94. minútu.
Reading féll úr keppni þrátt fyrir það eftir að hafa tapað vítaspyrnukeppninni.
,,Það var náttúrulega algjör snilld enda búin að bíða eftir þessu mjög lengi, hefði nú verið skemmtilegra ef við hefðum unnið leikinn og komist áfram en þetta var fín reynsla að koma þarna inná og taka þátt í vítaspyrnukeppninni."
Lán til Shrewsbury Town
Mánuði síðar var ákveðið að lána Gylfa til Shrewsbury Town í 2.deildinni á Englandi, en það er mánaðardvöl til að fá meiri reynslu með aðalliði. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði í fyrsta leik sínum fyrir félagið í 4-1 sigri gegn Bournemouth, en hann var einnig valinn maður leiksins.
Gylfi vildi þó snúa heim aftur til Reading þó aðalla vegna aðstæðna hjá Shrewsbury, en félagið sjálft vildi framlengja lánið.
,,Það voru bara ekki nógu margir leikir með varaliðinu á þessum tíma og ég þurfti að fá að spila eitthverja leiki og ég fór í mánuð til Shrewsbury og þar voru 7 eða 8 leikir í mánuðinum."
,,Ég hefði getað verið lengur hjá þeim, Shrewsbury vildu framlengja lánið en ég vildi fara aftur til Reading, aðstæðan hjá Shrewsbury var ekki alveg nógu góð til að vera þar meðan það var einn leikur í viku. Hinsvega þegar það voru 2 leikir í viku þá var lítið æft milli leikja svo það var fínt að vera þar þá," sagði hann enn fremur.
Frábær byrjun með Crewe
Láninu lauk í lok nóvember og því ekkert annað í boði fyrir hann en að hefja æfingar að nýju með Reading. Í lok desember 2008 var Guðjón Þórðarson ráðinn knattspyrnustjóri Crewe Alexandra og ákvað hann að fá Gylfa til liðs við sig á stuttu láni í febrúar mánuði.
Byrjun hans hjá Crewe var á svipaðan hátt og hjá Shrewsbury, en hann skoraði fjórða og síðasta mark Crewe gegn Brighton eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 54. mínútu. Þetta var þó aðeins byrjunin á mun bjartari hlutum fyrir Gylfa, en spilaði Guðjón Þórðar inn í ákvörðun hans að fara til Crewe?
,,Já hann var það enda er hann mjög góður þjálfari og gerði mjög góða hluti með landsliðið þegar hann var með það," sagði hann.
,,Ég var líka byrjaður að vilja fara á láni eitthvað aftur til að fá að spila í hverri viku og það voru svo margir leikir hjá Crewe í síðasta mánuði og þessum mánuði að ég gat eigilega ekki sagt nei. Og ég sé ekki eftir að hafa farið hingað enda mjög fínn klúbbur."
Gylfi hefur verið lykilmaður Crewe liðsins síðan hann kom til félagsins, en hann hefur hingað til spilað 13 leiki fyrir liðið og skorað þrjú mörk ásamt því að hafa verið valinn oftar en ekki maður leiksins og stjórnað miðjuspilinu í liðinu.
,,Já það er búið að ganga mjög vel hjá mér og já ég verð að segja að þetta kom mér skemmtilega á óvart. Okkur hefur líka gengið nokkuð vel og eigum fínan séns að ná að halda okkur uppi," sagði hann enn fremur.
Það verður því skemmtilegt að fylgjast með Gylfa enn frekar í framtíðinni og endasprettinum hans með Crewe í Englandi, en hvernig sér hann framtíðina fyrir sér?
,,Það er erfitt að segja, maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta. En maður hefur sín markmið og æfir sig mikið á hverjum degi til að ná þeim," sagði hann að lokum í samtali við Fótbolti.net.




