Fram 2 - 4 Vkingur R.
1-0 Kennie Knak Chopart ('10 )
1-1 Israel Garcia Moreno ('30 , sjálfsmark)
1-2 Stígur Diljan Þórðarson ('43 )
2-2 Ingvar Jónsson ('78 , sjálfsmark)
2-3 Elías Már Ómarsson ('80 )
2-4 Viktor Freyr Sigurðsson ('81 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn
1-0 Kennie Knak Chopart ('10 )
1-1 Israel Garcia Moreno ('30 , sjálfsmark)
1-2 Stígur Diljan Þórðarson ('43 )
2-2 Ingvar Jónsson ('78 , sjálfsmark)
2-3 Elías Már Ómarsson ('80 )
2-4 Viktor Freyr Sigurðsson ('81 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn
Fram fékk Víking í heimsókn í síðasta leik dagsins í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var mjög áhugaverður leikur.
Fram komst yfir snemma leiks. Kyle McLagan átti langa sendingu fram völlinn og Kennie Chopart slapp í gegn og kom Fram yfir.
Víkingur jafnaði metin eftir hálftíma leik. Gunnar Vatnhamar ætlaði að senda boltann fyrir en hann fór af höfðinu á Israel Garcia og í bláhornið.
Víkingur náði að snúa blaðinu við þegar Stígur Diljan Þórðarson slapp í gegn undir lok fyrri hálfleiks og skoraði örugglega.
Það var ótrúleg atburðarás undir lokin. Þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma átti McLagan skalla í stöng en boltinn fór í Ingvar Jónsson og í netið.
Tveimur mínútum síðar skoraði Elías Már Ómarsson af stuttu færi eftir skalla frá Gunnari Vatnhamar inn á teiginn og Víkingur komið aftur með forystuna. Strax í kjölfarið varð Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Fram, fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem innsiglaði sigur Víkings.

