Chelsea vann öruggan 7-0 sigur á C-deildarliði Port Vale í 8-liða úrslitum enska bikarsins í dag. Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var að vonum í skýjunum eftir leikinn.
„Þetta er ástæðan fyrir því að menn koma í þetta félag, menn vilja vinna titla, vilja spila stóra leiki og ég var mjög ánægður með leikmennina, viðhorfið var fullkomið," sagði Rosenior.
Enzo Fernandez hefur verið mikið í fréttum undanfarið en hann hefur gefið það sterklega til kynna að hann vilji fara til Real Madrid. Hann hefur verið settur í tveggja leikja bann hjá félaginu.
„Við skoruðum sjö mörk og það kom út af orkunni og áræðninni sem ég hafði gaman af. Fótbolti snýst um það sem gerist inn á vellinum. Þetta er risafélag og það er fylgst vel með, margir skrifa mikið um okkur. Við áttum mjög erfiða síðustu tíu daga en þetta er gott skref fyrir framhaldið."


