Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 04. apríl 2026 19:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur komst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í dag eftir góðan sigur á ÍBV í Eyjum eftir vítaspyrnukeppni. Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍBV 4 -  6 Þróttur R.

„Ég er alveg í skýjunum. Þetta var ógeðslega gaman en erfitt. Þetta var óhefðbundinn undirbúningur, fórum í langan Herjólf í gær og gistum hér, frábært að þetta var þess virði," sagði Venni.

„Við fáum betri færi í fyrri hálfleik og eitt dauðafæri til að komast í 2-0 og svo skot í stöngina. Það voru samt kaflar í leiknum sem Eyjamenn náðu að þrýsta á okkur án þess að búa til færi og það er alltaf stressandi að spila á móti Eyjamönnum og fá þessar eilífu fyrirgjafir á sig og þannig fáum við á okkur þessi mörk."

Margir ungir og efnilegir leikmenn Þróttar fengu tækifæri í dag.

„Ég er stoltur af því hvað það voru margir hreinræktaðir Þróttarar hérna í dag, sérstaklega undir lokin. Allir á vellinum voru gjörsamlega búnir á því, þá vorum við með einhverja sex stráka úr öðrum flokki og einn úr þriðja í hópnum og flestir komu inn á. Er stoltur af því að þeir hafi siglt þessu heim."
Slapp
banner
banner
banner