Guðlaugur Victor Pálsson og Nóel Atli Arnórsson voru báðir í sigurliði í dönsku B-deildinni í dag.
Guðlaugur Victor var í vörninni hjá Horsens sem marði 1-0 sigur á Lyngby.
Ísak Snær Þorvaldsson er á mála hjá Lyngby og gert sjö mörk á tímabilinu en hann var ekki með í dag vegna uppsafnaðra gulra spjalda.
Lyngby er þrátt fyrir tapið í efsta sæti meistarariðils B-deildarinnar með 42 stig en Horsens í botnsæti riðilsins með 33 stig.
Nóel Atli var í vörninni hjá Álaborg sem vann 5-2 sigur á Middelfart.
Álaborg er komið langleiðain með að tryggja áframhaldandi veru í B-deildinni en liðið er toppsæti fallriðilsins með 31 stig, ellefu stigum fyrir ofan fallsæti.
Blikinn Davíð Kristján Ólafsson var þá í vængbakverðinum hjá AEL Larissa sem tapaði fyrir Asteras Tripolis, 3-1, í fallriðli grísku úrvalsdeildarinnar.
Ítalska költ-hetjan Federico Macheda skoraði eitt af mörkum Asteras, en margir ættu að kannast við hann vegna tíma hans hjá Manchester United þar sem hann gerði tvö mörk sem reyndust dýrmæt United þegar liðið varð Englandsmeistari árið 2009.
Tapið hjá Larissa þýðir það að liðið er nú aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

