PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 04. apríl 2026 19:57
Elvar Geir Magnússon
Úlfarsárdal
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Kennie Chopart fagnar marki sínu í dag.
Kennie Chopart fagnar marki sínu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við hefðum viljað gera betur í þessum leik svona heilt yfir," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir 2-4 tap gegn Víkingi í 32-liða úrslitum bikarsins.

Rúnar segist mest svekktur yfir því að hafa náð að jafna leikinn 2-2 en hleypt Víkingi strax aftur í forystuna.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  4 Víkingur R.

Það er rúm vika í fyrsta leik Framí Bestu deildinni, liðið mætir ÍA á heimavelli í fyrstu umferð. Hvernig lítur Framliðið út þegar rúm vika er í leik?

„Bara þokkalega. Við værum til í að vera með lykilmenn í betra standi. Vuk er 60 mínútna maður í dag og varla það, Fred var ekki með okkur í dag og ekki heldur Sigurjón (Rúnarsson). Við erum búnir að vera í meiðslaveseni með leikmenn sem spiluðu mikið í fyrra en engu að síður er hópurinn ágætlega breiður."

Rúnar vonast til að Fred og Sigurjón verði með um næstu helgi og að Jakob Byström og Vuk verði í betra standi. Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson, sem er á láni frá Víkingi, spilaði ekki í dag en kemur inn í næsta leik.

Ægir Jarl Jónasson er kominn í Fram en hann er að glíma við meiðsli líka, verður hann klár?

„Það er möguleiki en það er tæpt. Það eru alltof margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast."
Slapp
banner
banner
banner