Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 20:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Southampton sló Arsenal úr leik
Mark Gyökeres dugði ekki til
Mark Gyökeres dugði ekki til
Mynd: EPA
Southampton 2 - 1 Arsenal
1-0 Ross Stewart ('35 )
1-1 Viktor Gyokeres ('68 )
2-1 Shea Charles ('85 )

Arsenal tapaði í úrslitum deildabikarsins gegn Man City um síðustu helgi og liðið er úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Championship liði Southampton í 8-liða úrslitum í kvöld.

Southampton byrjaði leikinn af krafti með skyndisóknum. Ein slík kom á fjórðu mínútu og Léo Scienza komst inn á teiginn en féll eftir viðskipti við Gabriel en dómari leiksins taldi þetta ekki nóg til að dæma vítaspyrnu.

Hinn 16 ára Max Dowman gerði mjög vel þegar kann kom sér í gott færi stuttu síðar en skotið beint á Daniel Peretz, markvörð Southampton.

Scienza komst í dauðafæri eftir slakan skalla hjá Gabriel til baka en Cristhian Mosquera kom í veg fyrir að hann gæti skorað á opið markið.

Arsenal óð í færum í kjölfarið en tókst ekki að skora. Southampton nýtti sér það og James Bree átti fyrirgjöf sem Ben White misreiknaði illa og boltinn barst til Ross Stewart sem kom Southampton yfir.

Arsenal tókst að jafna metin þegar Kai Havertz átti sendingu út í teiginn og Viktor Gyökeres skoraði.

Þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma brunaði Tom Fellows inn á teiginn með margar rauðar treyjur í kringum sig en hann fann Shea Charles sem skoraði og tryggði Southampton magnaðan sigur.
Slapp
banner