Chelsea 7 - 0 Port Vale
1-0 Jorrel Hato ('2 )
2-0 Joao Pedro ('25 )
3-0 Jordan Gabriel ('42 , sjálfsmark)
4-0 Tosin Adarabioyo ('57 )
5-0 Andrey Santos ('69 )
6-0 Estevao ('82 )
7-0 Alejandro Garnacho ('90 , víti)
1-0 Jorrel Hato ('2 )
2-0 Joao Pedro ('25 )
3-0 Jordan Gabriel ('42 , sjálfsmark)
4-0 Tosin Adarabioyo ('57 )
5-0 Andrey Santos ('69 )
6-0 Estevao ('82 )
7-0 Alejandro Garnacho ('90 , víti)
Chelsea er komið áfram í undanúrslit enska bikarsins en liðið vann þægilegan sigur á C-deildarliði Port Vale.
Jorrel Hato kom Chelsea yfir strax í upphafi leiks. Boltinn datt fyrir hann inn á teignum og hann skoraði af öryggi.
Joao Pedro fékk boltann inn á teignum frá Pedro Neto eftir 25 mínútna leik. Hann fékk nægan tíma til að athafna sig og skoraði annað mark Chelsea.
Undir lok fyrri hálfleiks kom síðan þriðja markið. Markvörður Port Vale varði boltann út í teiginn og Cole Palmer var nálægt því að komast í boltann, Jordan Gabriel, varnarmaður Port Vale, var hins vegar á undan og hann varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Tosin Adarabioyo skoraði síðan fimmta markið og róðurinn orðinn ansi þungur fyrir Port Vale.
Estevao var að spila sinn fyrsta leik síðan um miðjan febrúar en hann lagði upp fimmta markið á Andrey Santos og skoraði sjálfur sjötta markið. Það var síðan Alejandro Garnacho sem negldi síðasta naglann í kistu Port Vale þegar hann skoraði sjöunda markið úr vítaspyrnu í uppbótatíma.


