Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Tudor ósáttur: Hann er svindlari
Igor Tudor var allt annað en sáttur við dómarann og VAR
Igor Tudor var allt annað en sáttur við dómarann og VAR
Mynd: EPA
Króatíski stjórinn Igor Tudor sakar Raul Jimenez um að hafa svindlað í 2-1 tapi Tottenham gegn Fulham á Craven Cottage í dag.

Harry Wilson skoraði fyrra mark Fulham en það er markið sem Tudor var afar ósáttur við.

Hann sakar Raul Jimenez um að hafa svindlað með því að ýta Radu Dragusin með báðum höndum sem varð til þess að rúmenski varnarmaðurinn féll í grasið og í kjölfarið skoraði Wilson.

Tudor segist hrifinn af því þegar leikmenn berjast í teignum, en að þarna hafi Jimenez einfaldlega svindlað. VAR skoðaði markið, en var ekki sammála því að Jimenez hafi verið brotlegur.

„Að sjálfsögðu er þetta brot. Níu af hverjum tíu manneskjum segja að þetta sé brot því þetta er það augljóst. Stundum skilja þeir ekki alveg að minnsta snerting getur verið nóg og ef það gefur hinu liðinu forskot á að skora mark þá þarf að loka á þetta. Þetta snýst ekki um eðlilegt einvígi þar sem hann er aumur, heldur ýtir hann leikmanninum með höndunum og horfir ekki á boltann. Stundum er bara auðvelt að hagnast á hlutunum.“

„Það er fáránlegt að dæma ekki brot því afleiðingarnar eru of miklar. Þetta er ekki lítið brot út á miðjum velli, heldur kemur mark í kjölfarið. Það er ákveðin rökfræði í því að dómarinn gerir það fallega að láta leikinn halda áfram, spila af hörku og hafa einvígi í þessu sem er frábært og ég er hrifinn af því, en það er rökfræði í þessu.“

„Hann hagnast á þessu og hugsar ekki um boltann. Hann var að hugsa um að svindla, þannig hann svindlaði á leikmanninum með því að ýta á hann og svo skora þeir. Þetta er svindl og það á að dæma brot. Þetta snýst ekki um einvígið og það eru allir hrifnir af slíku. Það tengist því ekki neitt heldur var engin rökfræði í þessari ákvörðun og hún á alltaf að vera í forgangi,“
sagði Tudor.

Markið og brotið má sjá hér fyrir neðan.


Harry Wilson (Fulham) goal VAR check for a possible foul. Goal stands 8'
by
u/Imbasauce in
soccer

Athugasemdir
banner
banner
banner