Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 10:50
Elvar Geir Magnússon
Vonar að sjúkraþjálfarinn nái að kippa Gylfa í lag
Gylfi fór af velli í lok fyrri hálfleiks.
Gylfi fór af velli í lok fyrri hálfleiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson fór meiddur af velli í lok fyrri hálfleiks þegar Íslandsmeistarar Víkings unnu Stjörnuna 3-2 í stórskemmtilegum leik í gær.

„Hann var smá tæpur fyrir leikinn. Þetta eru vöðvameiðsli í lærinu, stífleiki meira en tognun. Hann stífnaði upp í fyrri hálfleik og mat svo að hann gæti ekki haldið áfram. Ég vona að þetta sé ekki neitt slæmt," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, beint eftir leik.

„Það er vissulega stutt í næsta leik en ég vona að sjúkraþjálfarinn nái að kippa honum í lag."

Gylfi hefur verið að spila í gegnum smávægileg meiðsli í upphafi Bestu deildarinnar. Víkingur fær ÍA í heimsókn á mánudagskvöldið.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

Gylfi var með fyrirliðabandið í leiknum í gær þar sem miðvörðurinn Oliver Ekroth er á meiðslalistanum. Ekki er ljóst hvenær Ekroth snýr til baka.

„Ég veit ekki hversu langur batatíminn er. Þetta eru leiðinleg meiðsli í táliðnum. Ég hef sjálfur lent í þessu. Það fer mikill kraftur í gegnum þennan lið. Þú þarft að ná þér að fullu áður en þú getur haldið áfram," segir Sölvi.
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Slapp
banner
banner