Guardian segir að ef Pep Guardiola hættir sem stjóri Manchester City þá muni Enzo Maresca að öllum líkindum taka við taumunum.
Fleiri fjölmiðlar fjalla um þetta og segja að City hafi þegar átt jákvæðar viðræður við Maresca um þennan möguleika.
Maresca hefur verið án starfs síðan hann sagði óvænt skilið við Chelsea í janúar.
Fleiri fjölmiðlar fjalla um þetta og segja að City hafi þegar átt jákvæðar viðræður við Maresca um þennan möguleika.
Maresca hefur verið án starfs síðan hann sagði óvænt skilið við Chelsea í janúar.
Guardiola á enn ár eftir af samningi sínum en auknar líkur eru taldar á því að hann kveðji í sumar.
Guardiola hefur sjálfur hlaðið Maresca lofi og sagt hann einn besta stjóra heims. Þeir tveir unnu saman hjá City þar sem Maresca var aðstoðarmaður þegar liðið vann Meistaradeildina 2023. Þeir aðhyllast mjög svipuðum leikstíl.



