Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mán 04. október 2021 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Abraham kallaður inn í enska hópinn
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Tammy Abraham hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir komandi leiki gegn Andorra og Ungverjalandi.

Abraham gekk í raðir Roma frá Chelsea fyrir tímabilið og hefur skorað fjögur mörk í tíu leikjum fyrir ítalska félagið.

Abraham er 24 ára gamall og er 24. leikmaðurinn í enska hópnum. Fyrir helgi var kynntur 23 manna hópur og Abraham var bætt við þann hóp í dag.

Abraham var síðast valinn í landsliðið fyrir tæpu ári síðan. Hann á að baki sex landsleiki og hefur í þeim skorað eitt mark. Fyrir í hópnum eru framherjarnir Ollie Watkins og Harry Kane.

Smelltu hér til að sjá enska landsliðshópinn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner