Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KA og Keflavíkur: Grímsi á bekknum - Fimm breytingar á liðunum
Oliver Heiðarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir KA.
Oliver Heiðarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir KA.
Mynd: KA
Axel Ingi kemur inn í varnarlínu Keflavíkur.
Axel Ingi kemur inn í varnarlínu Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Diego montiel skoraði gegn ÍA og byrjar í dag.
Diego montiel skoraði gegn ÍA og byrjar í dag.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Klukkan 18:00 á Greifavellinum tekur KA á móti Keflavík í fyrsta leik 4. umferðar í Bestu deildinni.

Fyrir leikinn eru bæði lið með eitt stig eftir fyrstu þrjá leikina eftir að hafa gert jafntefli í sínum leikjum í síðustu umferð.

Lestu um leikinn: KA 1 -  1 Keflavík

Það eru góðar fréttir af KA því liðið endurheimtir algjöran lykilmann í dag. Hallgrímur Mar Steingrímsson er mættur á bekkinn eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn ÍA í síðustu umferð. Oliver Heiðarsson, Samuel Kroon og Diego Montiel, sem skoraði í síðasta leik, koma inn í liðið. Kári Gautason, Jakob Héðinn Róbertsson og Markús Máni Pétursson taka sér sæti á bekknum.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir tvær breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Marin Brigic og Axel Ingi jóhannesson koma inn í liðið en þeir Nacho Heras og Anton Kralj eru ekki með.

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson
14. Danijel Dejan Djuric
15. Oliver Heiðarsson
17. Samuel Karl Kroon
20. Diego Montiel
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson

Byrjunarlið Keflavík:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
5. Davíð Helgi Aronsson
6. Sindri Snær Magnússon (f)
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
3.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
4.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
5.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
6.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
7.    Fram 3 1 1 1 6 - 5 +1 4
8.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
9.    KA 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
10.    Keflavík 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
Slapp
banner
banner