Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 19:31
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Fimmti útisigurinn í röð hjá Hákoni
Hákon og Lille ætla sér í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð
Hákon og Lille ætla sér í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð
Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille unnu fimmta útisigurinn í röð í frönsku deildinni er þeir lögðu Paris FC, 1-0, í dag.

Lille óð í færum í upphafi leiks. Hákon átti skot sem Kevin Trapp varði og þá sá hann einnig við skalla frá Benjamin Andre.

Romain Perraud fiskaði vítaspyrnu fyrir Lille á 26. mínútu er Marshall Munetsi tók hann niður í teignum og skoraði Matias Fernandez-Pardo úr spyrnunni.

Parísarliðið fékk dauðafæri til að jafna leikinn er Ngal'ayel Mukau handlék boltann í teignum, en Ilan Kebbal fór illa að ráði sínu á punktinum og setti boltann í stöng.

Undir lok leiks sá Pierre Lees-Melou, leikmaður Parísarliðsins að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt, sem bætti gráu ofan á svart fyrir heimamenn.

Lille hafði sigur að lokum og hefur nú unnið fimm útileiki í röð, en liðið er í 4. sæti með 57 stig og í ágætis málum fyrir síðustu þrjá leikina. Fjórða sætið gefur þátttökurétt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Rennes 2 - 1 Nantes
1-0 Esteban Lepaul ('8 , víti)
1-1 Ignatius Ganago ('40 )
2-1 Valentin Rongier ('90 )

Le Havre 4 - 4 Metz
1-0 Ally Samatta ('5 )
1-1 Giorgi Kvilitaia ('9 )
2-1 Yassine Kechta ('13 )
2-2 Gauthier Hein ('45 , víti)
3-2 Yanis Zouaoui ('52 , víti)
3-3 Jahyann Pandore ('54 )
4-3 Fode Doucoure ('61 )
4-4 Gauthier Hein ('85 )

Lorient 2 - 3 Strasbourg
1-0 Noah Cadiou ('26 )
2-0 Pablo Pagis ('54 , víti)
2-1 Sebastian Nanasi ('62 )
2-2 Andrew Omobamidele ('90 )
2-3 Nathaniel Adjei ('90 , sjálfsmark)

Paris FC 0 - 1 Lille
0-1 Matias Fernandez-Pardo ('26 , víti)
0-1 Ilan Kebbal ('74 , Misnotað víti)
Rautt spjald: Pierre Lees-Melou, Paris FC ('85)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner