PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   sun 26. apríl 2026 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Simons borinn af velli - HM í hættu
Mynd: EPA
Xavi Simons, leikmaður Tottenham, meiddist á hné þegar Tottenham heimsótti Wolves í gær og gat ekki klárað leikinn.

Hann þurfti að fara á börum af velli og er óttast að krossband í hné sé slitið.

Simons er hollenskur landsliðsmaður sem hefur verið í hlutverki í hollenska landsliðinu sem er á leið á HM í sumar.

Ef meiðslin eru alvarleg er ljóst að þessi 23 ára skapandi leikmaður er ekki á leið á HM.

Robert De Zerbi, stjóri Tottenham, gat ekki gefið nein svör um meiðsli Simons efitr leik.

Dominic Solanke, framherji Tottenham, meiddist líka í leiknum og er þar um vöðvameiðsli að ræða.

Tottenham vann leikinn en er áfram í fallsæti þegar lítið er eftir af mótinu.



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner